Íslenski boltinn

Hjörvar hermdi eftir Rúnari Páli og Logi sprakk úr hlátri | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/skjáskot/ernir
Sparkspekingnum Hjörvari Hafliðasyni er fleira til lista lagt en að tala um fótbolta eins og hann sýndi í Pepsi-mörkunum í gær.

Hjörvar sýndi þá áður óþekkta eftirhermutakta þegar hann brá sér í hlutverk Rúnars Páls Sigmundssonar, þjálfara Stjörnunnar.

Sjá einnig: Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur Ó. - Stjarnan 2-3 | Sigurgöngu Ólsara á heimavelli lokið | Sjáðu mörkin

Þetta uppátæki Hjörvars vakti mikla kátínu hjá Loga Ólafssyni, nýjasta meðlimi Pepsi-markanna.

Þjálfarinn gamalreyndi átti erfitt með sig og hreinlega sprakk úr hlátri eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×