Fótbolti

Hjörvar: Upplifi það ekki að Jón Daði geti skorað akkúrat núna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Í þætti gærkvöldsins veltu strákarnir í Messunni því fyrir sér hvernig byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Kósovó í undankeppni HM á föstudaginn verði skipað.

Talsvert er um forföll í íslenska liðinu að þessu sinni og það er ljóst að Heimir Hallgrímsson þarf a.m.k. að gera þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem hefur spilað flesti leiki Íslands á undanförnum árum.

„Mér finnst að Viðar [Örn Kjartansson] eigi að fá tækifæri til að spila. Ætli hann verði ekki frammi með Jóni Daða [Böðvarssyni],“ sagði Arnar Gunnlaugsson. Hjörvar Hafliðason var ekki á sömu skoðun.

„Ég myndi halda að þetta væri leikur þar sem væri gott að vera með tvo klóka framherja sem geta skorað. Ég upplifi það ekki að Jón Daði geti skorað akkúrat núna. En ég vona það innilega og geri fastlega ráð fyrir því að hann byrji,“ sagði Hjörvar.

Arnar velti því einnig upp hvort það mætti ekki nota Jón Daða á kantinum.

„Má ekki setja hann á kantinn? Hann getur alveg sinnt þeirri stöðu mjög vel með sína hlaupagetu og vilja til að verjast. Hann gæti verið fínn á kantinum ef á þarf að halda,“ sagði Arnar.

Skagamaðurinn spurði svo hvort Ísland mætti ekki breyta um leikaðferð en liðið hefur spilað 4-4-2 síðan Heimir og Lars Lagerbäck tóku við því.

„Erum við fastir í þessu kerfi, þegar þú ert ekki með leikmenn til að spila það? Má þá ekki breyta,“ sagði Arnar.

Hjörvar hafði lítinn húmor fyrir þessari hugmynd Arnars og sagði engar ástæðu til að breyta til.

„Þessi íhaldssemi hefur komið okkur þangað sem við erum í dag. Við höfum ekki verið að róta og fikta,“ sagði Hjörvar.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Lykilleikmenn eru lítið að spila

Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir leik gegn landsliði Kósóvó sem verður leikinn í Shkoder í Albaníu á föstudagskvöld. Leikurinn er afar mikilvægur – hann er hluti af undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi á næsta ári. Ísland er í þriðja sæti með sjö stig en Kósóvó neðst með eitt stig.

Mörg ný andlit í landsliðshópi Heimis

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Kósóvó í undankeppni HM. Sá leikur fer fram 24. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×