Enski boltinn

Hjörvar: Þessi maður þarf að skella sér á 5+2 kúrinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hjörvari Hafliðasyni blöskraði þegar hann sá Gary Taylor-Fletcher koma inná í leik Chelsea og Leicester um helgina en honum fannst Taylor-Fletcher vera í þyngri kantinum.

Taylor-Fletcher lék áður fyrr með Blackpool í ensku úrvalsdeildinni en hann virkaði einfaldlega of þungur um helgina til þess að vera að spila í deild þeirra bestu.

„Svona á atvinnumaður ekki að líta út, hann er góðum 12-18 kílóum of þungur. Þetta er óboðlegt að koma í þessu standi inná í deild þeirra bestu og vanvirðing gagnvart starfsbræðrum hans,“ sagði Hjörvar sem kom með lausn á hans málum.

„Við þurfum að henda honum í 5+2 kúrinn, þetta er alveg hræðilegt,“ sagði Hjörvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×