Lífið

Hjónavígsla að ásatrúarsið í kjól frá Aftur-systrum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
mynd/björn árnason
Stjörnukokkurinn Hrefna Rósa Sætran gekk að eiga sinn heittelskaða, ljósmyndarann Björn Árnason, um helgina. Hjónaefnin voru vígð að ásatrúarsið í Hvalfirðinum.

Hrefna geislaði á stóra daginn í smekklegum brúðarkjól sem Aftur-systurnar Hrafnhildur og Bára Hólmgeirsdætur hönnuðu.

Margt var góðra gesta en meðal þeirra sem fögnuðu með hjónunum voru skáldið Jón Atli Helgason, turtildúfurnar Hrefna Björk Sverrisdóttir og Magnús Scheving og útvarpsmaðurinn Frosti Logason.

Hljómsveitin GusGus sá síðan um að halda uppi fjörinu langt fram eftir kvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×