Menning

Hjón flytja kvæði skáldkvenna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hjónin Kristjana og Kristján flytja lög af væntanlegum diski í hádeginu á föstudag.
Hjónin Kristjana og Kristján flytja lög af væntanlegum diski í hádeginu á föstudag.
Kristjana Arngrímsdóttir söngkona stígur á svið í Hömrum, Menningarhúsinu Hofi, í hádeginu klukkan 12 á föstudaginn, ásamt eiginmanni sínum, Kristjáni Eldjárn. Þau flytja lög eftir Kristjönu sem hún hefur samið við ljóð og kvæði íslenskra skáldkvenna og verða tvö laganna frumflutt á tónleikunum.

Einnig verða á dagskránni lög við ljóð Davíðs Stefánssonar.

Tónleikarnir falla undir Föstudagsfreistingar sem Tónlistarfélag Akureyrar stendur að. Súpa er innifalin í aðgangseyrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×