Innlent

Hjólið hans Andra Snæs fundið

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"En það er komið í hús og gleðilegt, sögufrægt hjól sem David Mitchell höfundur Cloud Atlas hjólaði á um Grafarvoginn. Allavega takk!" segir Andri Snær.
"En það er komið í hús og gleðilegt, sögufrægt hjól sem David Mitchell höfundur Cloud Atlas hjólaði á um Grafarvoginn. Allavega takk!" segir Andri Snær.
Hjól Andra Snæs Magnasonar, sem stolið var í nótt, fannst í Hæðargarði nú fyrir skömmu. Frá þessu greinir Andri Snær á Facebook-síðu sinni.

Greint var frá því á Vísi í dag að hjóli Andra Snæs hafi verið stolið frá heimili hans í Reykjavík í nótt. Hann sagði tjónið tilfinnanlegt, enda sé hann mikill hjólagarpur. Um er að ræða svart Specialized reiðhjól.

Andri greinir frá því á Facebook að hjólið hafi fundist, eftir ábendingu frá lesanda Vísis. Hjólið sé nú komið í hús.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×