Innlent

Hjóli Andra Snæs stolið

Jakob Bjarnar skrifar
Tjónið er tilfinnanlegt en Andri Snær fer mikið til sinna ferða á reiðhjólinu, sem nú hefur verið stolið.
Tjónið er tilfinnanlegt en Andri Snær fer mikið til sinna ferða á reiðhjólinu, sem nú hefur verið stolið.
Andri Snær Magnason, rithöfundur og fyrrum forsetaframbjóðandi, hefur sent út tilkynningu til vina sinna á Facebook. Þar greinir hann frá því að reiðhjóli hans hafi verið stolið.

„Góðan dag internet - ef einhver hefur séð svart Specialized reiðhjól þá var mínu stolið í nótt hérna í 104 Reykjavík. Mikill kjörgripur. Megið hafa augun opin og hafa samband.“

Reiðhjólastuldur virðist vera viðvarandi vandamál og í tilfelli Andra Snæs er tjónið tilfinnanlegt, en hann er mikill hjólagarpur – trúr sannfæringu sinni um að umhverfisvernd alla leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×