Skoðun

Hjólað fyrir betri geðheilsu

María Einisdóttir skrifar
Um 1.000 manns hjóluðu hringinn í kringum landið til styrktar uppbyggingu Batamiðstöðvar á Kleppi í Wow Cyclothoni. Þetta er ómetanlegt framtak hjá Wow sem mun auka lífsgæði fjölda einstaklinga með geðsjúkdóma hér á landi.

Það dylst engum að góð líkamleg heilsa og hreyfing hefur mikil áhrif á andlega heilsu og lífsgæði fólks almennt. Því miður á fólk með geðsjúkdóma oft erfitt með að huga að sinni líkamlegu heilsu samfara því að glíma við mikla geðræna og tilfinningalega erfiðleika. Fyrir nokkru gerðum við rannsókn á gildi hreyfingar sem viðbót við hefðbundna meðferð. Sautján einstaklingar með geðrofssjúkdóma tóku þátt í 20 vikna rannsókn sem miðaði að því að fá hreyfingu inn í þeirra daglegu rútínu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu ótrúlegan árangur. Lífsgæði allra einstaklinganna jukust verulega en þeir áttu auðveldara með að stýra einkennum sjúkdómanna sem eru t.a.m. skortur á frumkvæði, félagsleg einangrun, kvíði, ranghugmyndir og ofskynjanir. Nær 90% þátttakenda voru á geðrofslyfjum en mjög algeng aukaverkun þeirra lyfja er mikil þyngdaraukning. Ekkert þeirra þyngdist þó á þessum tíma.

Við höfum góða reynslu af því að nota hreyfingu sem hluta af meðferð geðsjúkra. Okkur hefur hins vegar skort fjármagn til að bjóða upp á þann möguleika að staðaldri. Söfnunarféð mun nú gera okkur kleift að bjóða upp á heilsueflingu sem meðferðarúrræði á Batamiðstöðinni. Á Kleppsspítala eru 50 legurými sem munu nýta aðstöðuna en að auki munu einstaklingar á dag- og göngudeildum sækja þangað þjónustu.

Risastórt afrek

Markmið Batamiðstöðvar er að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín, lifa innihaldsríku lífi þrátt fyrir alvarleg sjúkdómseinkenni. Í sumum tilvikum er lækning ekki möguleg og þá snýst þetta fyrst og fremst um að auka lífsgæði þrátt fyrir veikindin. Áherslan er á að hjálpa fólki að finna þau verkfæri sem það getur notað til að lágmarka sjúkdómseinkennin. Batamiðstöðin mun styðja fólk til að taka sjálft ábyrgð og stjórn á eigin lífi þrátt fyrir mikla erfiðleika og ekki síður að gefa því von um aukin lífsgæði hvað sem einkennum sjúkdóma þess líður.

Fólk með geðsjúkdóma hefur alla tíð mætt fordómum. Með átaki sem þessu og einnig þegar Á allra vörum safnaði fyrir nýrri bráðageðdeild erum við að opna umræðuna og vekja athygli á málaflokknum. Það er erfiðara að vera fordómafullur þegar maður er upplýstur og því er fræðsla og umræða öflugasta vopnið gegn fordómum. Þessi stóri viðburður vinnur ekki síður á fordómum og verður slíkt aldrei metið til fjár. Fyrir hönd Geðsviðs Landspítala þakka ég af alhug Wow, öllum hjólreiðaköppunum sem lögðu á sig þetta erfiði og þeim sem styrktu söfnunina. Þið hjóluðuð fyrir betri geðheilsu landsmanna og minni fordómum í samfélagi okkar. Það er risastórt afrek.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×