Skoðun

Hjóla, sippa, synda, tvista…

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ert þú foreldri? Ertu eitthvað farin/n að spá í sumarfrí? En hvað með sumarnámskeið fyrir börnin? Reiðnámskeið í tvær vikur? En myndlistarnámskeiðið sem allir eru að tala um að sé svo brilljant? Ha, ekki? Þau fá allavega nýtt hjól, er það ekki, og fara á klifurnámskeið? Finnurðu fyrir pressu? Þá er eins gott að þú sért með góð meðallaun eða með gott tengslanet, að minnsta kosti ef þú vilt að þau fari í sumarbúðir. Frístundakortið er ekki hægt að nota fyrir svona styttri námskeið og afþreyingu, skilurðu!

Á síðasta ári bjuggu um 2% landsmanna, yfir 6.000 manns, við verulegan skort á efnislegum gæðum. Í Hagtíðindum Hagstofunnar (2015:2) segir samt, og sem betur fer, að það sé fátítt að börn á Íslandi skorti lífsgæði – með einni undantekningu þó en það er þátttaka barna í reglulegri tómstundaiðju. Árið 2014 var tæpur þriðjungur barna á Íslandi ekki í reglulegu tómstundastarfi.

Fjárhagsleg afkoma foreldranna er breyta sem skiptir máli í þessu samhengi en í fyrra voru 37% barna í lægsta fimmtungi tekjudreifingarinnar ekki í reglulegri tómstundaiðju samanborið við 18,5% í hæsta fimmtungnum.

En hvað þýðir þetta þegar maður er tíu ára og langar að taka þátt í tómstundaiðju með vinum sínum (sem fara svo kannski til Spánar seinna í sumar)? Hvað þýðir það að hafa ekki þann möguleika og upplifa sig út undan? Og ekki bara núna í sumar heldur líklegast líka næstu ár? Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl fátæktar og félagslegrar einangrunar barna sem hefur varanleg neikvæð áhrif á sjálfsmynd og sjálfstraust þeirra þannig að þau komast við illan leik út úr vítahring aðstæðna.

Í fyrra aðstoðaði Hjálparstarf kirkjunnar um 5.900 einstaklinga sem búa við fátækt. Við beinum sjónum okkar fyrst og fremst að barnafjölskyldum með það að markmiði að draga úr hættunni á félagslegri einangrun og þá barna alveg sérstaklega. Þess vegna veitum við styrki til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms og tómstunda barna. Við erum að safna fyrir verkefninu núna með því að selja gjafakortið „Gleðilegt sumar“ í verslunum Hagkaups. Viltu vera með og gefa barni gleðilegt sumar? Fyrirfram þakkir!




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×