Lífið

Hjartasteinn á Feneyjahátíðinni

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Guðmundur Arnar Guðmundsson er að vonum ánægður með að komast inn á Feneyjahátíðina.
Guðmundur Arnar Guðmundsson er að vonum ánægður með að komast inn á Feneyjahátíðina. Mynd/Ingibjörg Torfadóttir
„Þetta er alveg magnað, þetta er í raun og veru algjör draumabyrjun fyrir okkur – við erum búin að vera að vinna lengi í myndinni og því er þetta alveg frábært,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri Hjartasteins aðspurður að því hvernig það legst í hann að hlotnast þessi heiður.

Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd Guðmundar í fullri lengd en hann hefur hingað til skrifað og leikstýrt stuttmyndum - til að mynda gerði hann hina margverðlaunuðu stuttmynd Hvalfjörður sem hefur alls hlotið 45 verðlaun á kvikmyndahátíðum þar á meðal dómaraverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013.

Hvernig verðlaun eru í boði í þessum flokki?

„Við getum unnið áhorfendaverðlaun, Venice Days verðlaunin og síðan sérstök verðlaun veitt af samtökum Evrópskra kvikmyndahúsa sem veita kynningarstyrk og staðfestingu á því að myndin verði sýnd í kvikmyndahúsum víðsvegar um Evrópu.. Venice Days er flokkur sem stofnaður er til heiðurs leikstjórum af ítalska leikstjórafélaginu. Við fengum fleiri spennandi boð fyrir heimsfrumsýningu myndarinnar en þegar Venice Days hafði samband þá var það engin spurning enda einstakt tækifæri.. Auk þess get ég unnið verðlaunin Ljón framtíðarinnar – en það eru verðlaun fyrir fyrstu mynd leikstjóra og eru ein af þessum stóru verðlaunum á hátíðinnisem myndir í öllum flokkum keppa um.“

Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd mun keppa á þessari hátið og eru það aðeins tólf kvikmyndir sem taka þátt í þessum flokki. Hátt í þúsund myndir allsstaðar að úr heiminum sækja um að komast í flokkinn enda er kvikmyndahátíðin í Feneyjum ein sú virtasta sinnar tegundar í heiminum og jafnframt sú elsta, en hún verður 73 ára í ár. Hátíðin fer fram frá 31.ágúst – 10.september.

Hvernig mynd er Hjartasteinn?

„Þetta er vináttusaga tveggja stráka í sjávarþorpi sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina.“

Tökur fóru fram haustið 2015 í Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Vopnafirði og Dyrhólaey. Með helstu hlutverk fara ungstirnin Baldur Einarsson, Blær Hinriksson, Diljá Valsdóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Rán Ragnarsdóttir, Daniel Hans Erlendsson, Theodór Pálsson og Sveinn Sigurbjörnsson ásamt þeim þaulreyndu Nínu Dögg Filippusdóttur, Sveini Ólafi Gunnarssyni, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Søren Malling og Gunnari Jónssyni. Framleiðendur Hjartasteins eru Anton Máni Svansson og Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Join Motion Pictures og Lise Orheim Stender og Jesper Morthorst fyrir hið danska framleiðslufyrirtæki SF Studios Production.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×