Tíska og hönnun

Hjartað fær að vera úr skínandi gulli

Guðný Hrönn skrifar
Mynd eftir Sögu Sig fyrir Milagros-skartgripalínuna.
Mynd eftir Sögu Sig fyrir Milagros-skartgripalínuna. Ljósmynd/Saga Sig
Skartgripahönnuðirnir Orri Finnbogason og Helga G. Friðriksdóttir, sem hanna undir merkinu Orrifinn Skartgripir, senda frá sér sína fimmtu skartgripalínu í dag. Línan kallast Milagros og er innblásin af ferðalagi þeirra um Mexíkó og Perú. „Já, í fyrra fórum við í þessa langþráðu reisu og lögðum mikla áherslu á að skoða fornleifar og gömul hof sem Astekar, Majar og Inkar hafa skilið eftir sig,“ segir Helga.

Þegar heim var komið hófst hugmyndavinna fyrir nýju línuna. „Í hugmyndavinnunni urðu þessir litlu gripir sem skreyta mexíkóskt umhverfi ofan á, þeir kallast á spænsku milagros sem má þýða sem „kraftaverk“ og þaðan dregur línan nafn sitt. Þeir eru oft í laginu eins og hjörtu, útlimir, beinagrindur og í raun hvað sem er.“

Helga og Orri hanna undir merkinu Orrifinn.Vísir/Ernir Eyjólfsson
„Þegar við fórum að kynna okkur þetta betur þá kom í ljós að upprunalegi tilgangurinn með þessum gripum er að heita á eitthvað eða biðja fyrir bata. Áheitagripirnir eru gjarnan í formi líkamshluta eða líffæra því oft vill biðjandinn kalla eftir bata af líkamlegu eða andlegu meini. Táknið getur verið bókstaflegt en þarf ekki að vera það. Ef hjarta er til dæmis lagt á helgan stað má biðja um bata af líkamlegu hjartameini en líka um bata af ástarsorg. Okkur þótti þetta mjög fallegur siður.“

Í línunni notast þau Helga og Orri mestmegnis við form mannabeina. „Við studdumst við hugmyndina á bak við þessa áheitagripi en við útfærðum gripina með formum mannabeina. En til viðbótar við mannabein notuðum við líka hjartað. Hjartað er það líffæri sem ræður oft huganum. Það er sterkt líffæri sem við tengjum flest við. Það er svo ljóðrænt og fallegt,“ útskýrir Helga.

Allir gripir línunnar eru úr silfri og bronsi, fyrir utan hjartað. Það er úr gulli. „Já, hjartað verður að vera úr gulli. Það er skemmtilegur „konstrast“ í því að blanda gylltu hjarta saman við mannabein úr silfri og bronsi. Svo notum við líka ferskvatnsperlur í línunni, til að gera þetta ennþá meira rómantískt og grand.“

Nýja skartgripalínan verður frumsýnd í kvöld í kokteilboði á Jacobsen Loftinu klukkan 19.00. Þar verða einnig til sýnis ljósmyndir af Milagros-línunni eftir Sögu Sigurðardóttur. „Við höfum unnið með Sögu áður og samstarf okkar hefur verið farsælt, hún skilur okkur og við höfum mikla trú á henni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×