Innlent

Hjálpuðu jólasveinunum að dreifa pökkum í Hveragerði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jólasveinarnir með vöskum skáta úr Hjálparsveitinni í Hveragerði í dag.
Jólasveinarnir með vöskum skáta úr Hjálparsveitinni í Hveragerði í dag.
Jólasveinarnir óskuðu í dag eftir aðstoð frá Hjálparsveit skáta í Hveragerði við að dreifa pökkum þar sem mikil hálka er á götum bæjarins.

Hjálparsveitin tók vel í það og ók sveinunum á milli húsa þar sem börnin biðu spennt eftir pökkunum. Jólasveinarnir voru í hátíðarskapi og afar þakklátir fyrir aðstoðina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×