Erlent

Hjálparstarfsmenn á Gaza örmagna

Linda Blöndal skrifar
 Harðar árásir héldu áfram í nótt, dag og í morgun á Gaza og er mannfall komið yfir 500 manns. yfirmaður Rauða hálfmánans á Gaza sagði við Stöð tvö áðan að hjálparstarfsmenn fengju enga vernd og væru örmagna. Tugir þeirra hafi særst, sjúkrabílar eru nýtir og hjálpargögn lítil.

Gríðarlegt mannfall

Meira en 500 manns eru fallnir í stríði Ísraelsmanna og Hamas frá því það hófst fyrir næstum tveimur vikum. Langstærsti hlutinn óbreyttir palenstínskir borgarar en átján Ísraelskir hermenn hafa einnig látið líkið auk tveggja óbreyttra ísraelskra borgara segja yfirvöld þar.



Margir látnir úr sömu fjölskyldum

Stórskotaárásir í nótt og í morgun felldu 25 manns frá einni og sömu fjölskyldunni við landamæri við Egyptaland og aðrir tíu úr annarri fjölskyldu voru drepnir stuttu frá. Í bænum Khan Younis í suðurhluta Gaza varð mikil mannfall og eyðilegging snemma í morgun.

Khalil Abu Foul
Læknar særast

Sjúkrahúsið Al-Aqsa á miðri Gaza varð fyrir harðri árás svo minnst fjórir létust og 70 slösuðust, meðal annars læknar.  Khalil Abu Foul, yfirmaður Rauða hálfmánans á Gaza sem vinnur með Rauða krossinum var með hjálparliði sínu á sjúkrahúsinu í morgun. Hann segir hjálparstarfið mjög laskað, um sextíu hjálparsveitarmanna eru særðir. Hann segir þá örmagna.  Tíu sjúkrabílar eru skemmdir og sumir þeirra gjörónýtir.

Bandaríkjamenn reyna friðarumleitanir

Bandaríkjamenn reyna nú að koma á friði. John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Kæró í Egytalandi í dag til fundar við þarlenda leiðtoga og sagði Obama forseti í stuttu ávarpi í dag að ítrekað væri að Ísrael hefði rétt til að verja sig en áhyggjur væru miklar af mannfalli, beggja vegna landamæranna. Að mati Sameinuðu þjóðanna telst ógnarástand vara í meira en fjörtíu prósent af Gaza og stór hluti þess nú yfirgefið.


Tengdar fréttir

Mesta mannfall á Gaza frá því átökin hófust

87 Palestínumenn hafa fallið í hörðum átökum við Ísraelsher á svæði við landamærin að Ísrael. Þá féllu 13 ísraelskir hermenn í átökunum en þetta er mesta mannfall sem orðið hefur á einum sólarhring frá því átökin hófust fyrir tæpum tveimur vikum.

Sprengjum enn varpað á sjúkrahús

Fjórir hið minnsta eru látnir og tugir særðir eftir að sprengjum Ísraelshers var varpað á al-Aqsa Martys sjúkrahúsið í Deir al-Balah á Gaza í dag.

Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa

Mustafa Barghouti, læknir sem hlotið hefur tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, segir ástandið á Gasa skelfilegt og kallar eftir efnahagsþvingunum gegn Ísrael.

Þrjú börn fórust eftir vopnahléð

Fljótt eftir að fimm klukkustunda vopnahlé Hamas og Ísraelshers var aflétt í dag hófust árásir á ný og 3 börn biðu bana í Gaza borg. Um 227 hafa fallið á Gaza í loftárásum Ísraels, samkvæmt palestínskum yfirvöldum, á síðustu tíu dögum.

Herinn herðir sókn á Gaza

Stjórnvöld í Ísrael hafa greint frá því að herinn muni herða sókn á Gazasvæðinu og hefur átján þúsund manna varalið hefur verið kallað út. Fjöldi hermanna Ísraelshers er því komin í sextíu og fimm þúsund.

Ísraelsher herðir aðgerðir á Gaza

Ísraelsher hóf í nótt harðar árásir á jörðu niðri yfir landamæri Gaza og herða nú aðgerðir sínar gegn Hamas og öðrum palenstínskum baráttuhópum. Mikið mannfall varð meðal íbúa Gaza í nótt.

Obama ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Ísrael

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hefði rætt við Benjamin Netanyahu. forsætisráðherra Ísraels, um ástandið á Gaza.

Tvöfalt fleiri á vergangi á Gaza

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hyggst miðla málum í deilunni á Gasa en líkur á vopnahléi eru ekki taldar miklar.

Sautján þúsund flýja heimili sín

Hundrað sjötíu og tveir liggja nú í valnum og yfir þúsund eru særðir. Þá hafa um sautján þúsund Palestínumenn flúið svæðin í norðurhluta Gaza, en þangað færist vígvöllur mestu blóðsúthellinga sem átt hafa sér stað milli Palestínu og Ísraels í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×