Innlent

Hjálparstarf kirkjunnar brýnir fyrir stjórnvöldum að virða mannréttindi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.
„Fólkið er að deyja við bæjardyrnar – Evrópskt samfélag verður að bregðar við núna”. Þetta er yfirskrift yfirlýsingar sem framkvæmdastjórar kirkjutengdra hjálparstofnanna á Norðurlöndunum sendu á dögunum frá sér tilkynningu vegna flóttamannavandans í Evrópu.

Framkvæmdastjórarnir funduðu í danska bænum Hróarskeldu í lok ágústmánaðar og sendu yfirlýsinguna frá sér í lok fundarins.

Í yfirlýsingunni kemur fram að þeir sem leiðtogar hjálparstofnana sem starfa á grunni kristinna gilda teljum brýnt að evrópskt samfélag bregðist tafarlaust við neyð flóttafólks. Nú reyni á að orðum fylgi athafnir.

Verðum að axla ábyrgð

Evrópubúar séu í aðstöðu til að rétta hjálparhönd og stjórnvöld mega ekki bregðast þeirri skyldu sinni að virða rétt fólks til mannsæmandi lífs. Flóttafólki því sem nú streymir til Evrópu verði að koma til aðstoðar. Fólk sem hefur flúið heimaland sitt vegna stríðsátaka verði að njóta þeirrar aðstoðar sem því ber samkvæmt alþjóðalögum um mannréttindi og réttindi flóttafólks.

Stöðugt þyngri straumur flóttafólks til Evrópu er afleiðing fátæktar og stríðsátaka. Evrópubúar verði að taka höndum saman og veita aðstoð. Að reisa girðingar og loka fólk úti sé engin lausn. Vandinn verður hins vegar ekki leystur nema með því að ráðast að rótum hans.

Norrænar kirkjutengdar hjálparstofnanir eru staðráðnar í að halda áfram að þrýsta á stjórnvöld svo þau efli virðingu fyrir mannréttindum. Þær munu halda áfram neyðaraðstoð og þróunarsamvinnu og leggja áherslu á að aðstæður skapist þannig að fólk sé ekki nauðbeygt til að að yfirgefa heimkynni sín.

„Þótt við búum á eyju í Norðurhafi verðum við að axla ábyrgð og gera það sem við getum til að taka á móti flóttafólki. Það skelfilega ástand sem nú ríkir er líka áminning um að auka þarf fjármagn til þróunarsamvinnu. Með því að bæta ástandið á þeim svæðum sem fólk er að flýja frá er tekist á við rót vandans. Að draga úr þróunarsamvinnu í þessu ástandi er í raun að skjóta sig í fótinn,“ segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs Kirkjunnar.


Tengdar fréttir

Þúsundir flóttamanna bíða á brautarstöð

Lögreglan í Búdapest fylgist með en sjálfboðaliðar gefa mat og föt. Í Bretlandi segist David Cameron vilja koma á friði í Sýrlandi frekar en að taka við fleiri flóttamönnum.

Hvað kostar að taka á móti flóttamanni?

Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna móttöku flóttafólks geti numið á bilinu 4-5 milljónum króna á hvern einstakling miðað við fengna reynslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×