Skoðun

HIV faraldur gengur yfir Indiana, BNA - neyðaráætlun sett í gang

Jón Tryggvi Sveinsson skrifar
Frá seinni hluta janúarmánaðar hafa um 70 manns, aðallega sprautusjúklingar, greinst með HIV smit í Scott County einu fylkja Indiana, með íbúafjölda er á við Reykjavík (um 130.000). Ef ekki tekst að hefta framgang þessa faraldurs mun nýsmit skipta hundruðum í lok árs, og líklega nálgast þúsundið. Menn geta rétt ímyndað sér hver áhrifin eru á heilbrigðiskerfið fylkisins vegna þess, beinn kostnaður við meðferð hvers einstaks einstaklings með HIV smit er talið nema um 160 milljónir IKR (tölur frá 2011).

26. mars lýsti fylkisstjórinn yfir 30 daga neyðarástandi til að reyna með öllu móti að hamla útbreiðslu þessa faraldurs. Til marks um alvarleika málsins þá hefur CDC, sóttvarnamiðstöð BNA, sent fjölda starfsfólks til aðstoðar. Hafin er árvekniherferð til að vekja íbúa fylkisins um hættuna sem þeim stafar af faraldrinum.

Þetta eru skelfilegar fréttar, og eru til marks um það hversu mikilvæg öflug fræðsla og forvarnir eru, meðal ALLRA þjóðfélagshópa.

Við Íslendingar fengum alvarlega viðvörun á árunum 2010 og 2011 þegar skyndileg aukning varð á HIV-smiti meðal íslenskra sprautufíkla. Sem betur fór tókst þá að koma í veg fyrir að þetta yrði að faraldri hér. Það má þakka öflugu fræðslu- og forvarnarstarfi HIV-Ísland, ásamt skaðaminnkunarverkefni frú Ragnheiðar.

Fræðsluverkefni HIV-Íslands, sem samtökin hafa haldið úti sl. 14 ár kostar um 2 milljónir kr. á ári, þar af hefur styrkur Landlæknisembættis til þess numið um 750 þús. Króna. Til samanburðar er kostnaður við lyfjagjöf og meðferð eins HIV+ einstaklings um 3 milljónir á ári.

Fræðslunni er haldið úti af félagsmönnum samtakanna, og boðið frítt öllum þeim rúmlega 100 grunnskólum landsins sem eru með kennslu á unglingastigi. Sökum samdráttar í opinberum styrkjum um margra ára skeið er nú hætta á að hún leggist af. Samtökin vilja vekja athygli á að þeim er nauðsyn að fá aukinn fjárhagslegan stuðning frá ríki og landlæknisembætti, til frambúðar.




Skoðun

Sjá meira


×