Íslenski boltinn

Hittast á toppnum eftir ólíkan áratug

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Páll Snorrason og Daníel Laxdal eigast við.
Ólafur Páll Snorrason og Daníel Laxdal eigast við. Vísir/Daníel
Fyrir rétt rúmum tíu árum tók Heimir Guðjónsson við Íslandsbikarnum fyrstur FH-inga eftir að FH vann 2-1 sigur á KA á Akureyri í lokaumferð úrvalsdeildar karla 2004. Aðeins tveimur dögum áður höfðu Stjörnumenn fallið niður í C-deildina eftir 1-6 skell á móti HK.

FH hefur ekki hafnað neðar en í öðru sæti síðan þá og á sama tíma hafa Stjörnumenn byggt upp lið frá því að keppa í 2. deildinni í að vera einum leik frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins.

Nú tíu árum síðar er framundan hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn á milli FH og Stjörnunnar, tveggja liða sem meira en tuttugu sæti skildu að í töflunni sumarið 2005 þegar FH lék í úrvalsdeildinni en Stjarnan í 2. deild.

Það er því magnað að bera saman gengi nágrannafélaganna sem horfa hvort til annars yfir hraunið á milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar.

Á sama tíma og FH-ingar hafa unnið sex Íslandsmeistaratitla og endurskrifað íslensku knattspyrnusöguna hvað varðar stöðugleika á toppnum hafa Stjörnumenn stigið hvert risastóra skrefið á eftir öðru í sögu síns félags. Fyrsti bikarúrslitaleikurinn, fyrsti Evrópuleikurinn og fyrsta verðlaunasætið standa vissulega upp úr í dag en á laugardaginn er tækifæri til að stíga langstærsta skrefið með því að koma með Íslandsbikarinn í fyrsta sinn í Garðabæinn.

Heimir með öll árin

Heimir Guðjónsson er eini FH-ingurinn sem hefur tekið þátt í öllum þessum tólf verðlaunatímabilum FH-liðsins (frá 2003), fyrst sem fyrirliði (3 sumur), þá sem aðstoðarþjálfari (2 sumur) og loks sem aðalþjálfari liðsins undanfarin sjö sumur.

Heimir varð á dögunum fyrsti þjálfarinn til að vinna hundrað leiki með sama félagi í efstu deild og á nú möguleika á því að gera FH-inga að Íslandsmeisturum í fjórða sinn. Liðið vann þrjá fyrstu titlana undir stjórn Ólafs Jóhannessonar en undir stjórn Heimis hefur liðið haldið sér á toppnum.

Atlarnir lengi að

Atlarnir, Atli Viðar og Atli Guðnason, hafa verið viðloðandi FH-liðið allan þennan tíma en Atli Viðar Björnsson hefur tekið þátt í öllum Íslandsmeistaratitlum FH-liðsins og getur því unnið sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil um helgina. Atli Guðnason spilaði einn leik titilsumarið 2004 en var í láni hjá Fjölni þegar FH vann titilinn 2005. Atli Guðnason hefur verið algjör lykilmaður á bak við síðustu tvo titla Hafnarfjarðarliðsins.

Það hafa fleiri þjálfarar komið að uppgangi Stjörnumanna en upphaf velgengninnar má rekja til þess þegar Bjarni Jóhannsson tók við liðinu haustið 2007. Stjarnan hafði þá endað í 9. sæti í 1. deildinni og hefði fallið í 2. deildina ef ekki hefði verið fjölgað í efstu tveimur deildunum. Bjarni fór upp með Stjörnuna á fyrsta ári og liðið endaði í 7. sæti á fyrsta ári í Pepsi-deildinni eftir sannkallaða spútnikbyrjun.

Stjörnumenn buðu alltaf upp á mikla skemmtun í tíð Bjarna, hver man ekki eftir öllum fögnunum sem fóru sigurför um netheima eða öllum markaleikjunum þar sem áhættusamur leikur Garðbæinga kom margoft í bakið á þeim.

Logi þétti vörnina

Logi Ólafsson náði að fylla í götin í varnarleiknum á sínu eina tímabil og var líka fyrsti þjálfarinn sem kom liðinu í Evrópukeppni. Rúnar Páll Sigmundsson aðstoðaði Loga í fyrra og honum hefur síðan tekist að byggja ofan á það góða verk.

Það hafði samt örugglega enginn Stjörnumaður búist fyrirfram við Ævintýrasumrinu 2014. Evrópukeppnin kom liðinu í heimspressuna og liðið er nú enn taplaust eftir 21 umferð í Pepsi-deildinni. Einn sigur í viðbót og Íslandsmeistaratitillinn er Garðbæinga.

Í Stjörnuliðinu í dag er einn leikmaður sem upplifði það að falla með liðinu í 2. deild fyrir tíu árum. Daníel Laxdal var þá aðeins 18 ára en spilaði fimm leiki með Stjörnuliðinu í 1. deildinni. Daníel var ekki með meistaraflokknum sumarið eftir en hefur verið fastamaður í liðinu frá og með 2006-tímabilinu. Daníel hefur spilað 129 af 131 leik Stjörnuliðsins síðan liðið kom upp í Pepsi-deildina 2009.

Stjörnuliðið hefur þegar gert þetta að einstöku sumri í sögu Garðabæjarfélagsins og nú reynir á hvort Stjörnumenn séu saddir eða hvort þeir verði tilbúnir að mæta sigurhefð FH-liðsins af fullum krafti í Krikanum. FH-Mafían, Silfurskeiðin og aðrir íslenskir knattspyrnuáhugamenn bíða spenntir. Það lætur sig enginn vanta þegar úrslitin ráðast í Pepsi-deildinni 2014.


Tengdar fréttir

Sögulegur afmælisdagur Atla

FH-ingurinn Atli Guðnason hefur náð bæði markaþrennu og stoðsendingaþrennu á einum mánuði en framganga hans í lokakafla Íslandsmótsins á mestan þátt í því að FH-liðið er aðeins einu stigi frá titlinum.

Ekki hægt að kaupa miða á úrslitaleikinn á leikdegi

FH og Stjarnan mætast á laugardaginn í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta en leikurinn fer fram klukkan 16.00 á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. FH-ingar eru búnir að skipta upp stúkunum og fyrirkomulag við sölu miða á leikinn verður með sérstökum hætti. Almenn forsala hefst í Kaplakrika á fimmtudagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×