Innlent

Hiti gæti skriðið yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls: „Eins ótrúlega og það hljómar“

Birgir Olgeirsson skrifar
Hiti er sagður einna helst geta náð yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls í dag.
Hiti er sagður einna helst geta náð yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls í dag. Vísir/vedur.is
„Veðurfræðingar sem og íbúar þessa lands upplifa Groundhog day þessa dagana, veðrið endurtekur sig dag eftir dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar kemur fram að í stuttu máli sé ekkert nýtt að frétta varðandi veðrið í dag, áfram skýjað sunnan- og vestanlands, von á rigningu öðru hverju og sums staðar mun ekki rigna neitt

„Öllu meira spennandi staða fyrir norðan og austan, þar mun sjást til sólar, þótt heldur sé hámarkshiti á niðurleið. Það á reyndar við um land allt og er þess ekki að vænta að hiti skríði yfir 20 stigin í dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings en þar er hiti sagður einna helst geta náð yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls.

„Eins ótrúlega og það hljómar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Talið er að staðan geti breyst á sunnudag en þá gæti sólin jafnvel látið sjá sig sunnan- og vestanlands, en öllu þyngra verður þá yfir öðrum landshlutum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á sunnudag:

Austan og norðaustan 5-10 m/s. Víða bjartviðri sunnan- og vestanlands, en skýjað með köflum norðan- og austan til og þokuloft við ströndina. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast í innsveitum vestanlands.

Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:

Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og skúrir til landsins, einkum síðdegis. Heldur kólnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×