Tónlist

Hita upp fyrir Rae Sremmurd

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Retro Stefson og Hermigervill hita upp fyrir Rae Sremmurd.
Retro Stefson og Hermigervill hita upp fyrir Rae Sremmurd. mynd/Magnusandersen
Hljómsveitin Retro Stefson og raftónlistarmaðurinn Hermigervill eru meðal þeirra tónlistarmanna sem hita upp fyrir bræðurna í bandaríska hiphop-dúóinu Rae Sremmurd þegar þeir spila í Laugardalshöll þann 27. ágúst næstkomandi.

„Þetta er max spennandi, ég er búin að hlusta lengi á þessa gaura og man eftir því þegar þeir gáfu út fyrsta lagið sitt sem var alveg fáránlega skrýtið,“ segir Logi Pedro Stefánsson, einn af meðlimum Retro Stefson, og bætir við að það sé mjög spennandi að hljómsveitin sé væntanleg til landsins.

Stutt er síðan tilkynnt var um komu bræðranna til landsins en þeir hafa átt mikilli velgengni að fagna vestanhafs.

Í gær var tilkynnt að rapparinn Gísli Pálmi myndi hita upp fyrir bræðurnar og á næstu dögum verður tilkynnt um enn fleiri atriði sem koma munu fram við tilefnið.

Tónleikarnir verða líkt og áður sagði í Laugardagshöll þann 27. ágúst næstkomandi og hefst miðasala eftir rúmar tvær vikur.


Tengdar fréttir

Bræðurnir í Rae Sremmurd troða upp í Laugardalshöll

Bræðurnir í rappsveitinni Rae Sremmurd njóta gífurlegra vinsælda í Bandaríkjunum. Plata sveitarinnar, SremmLife náði efsta sæti á tveimur Billboard-listum. Margar stórar íslenskar hljómsveitir koma fram sama kvöld í Laugardalshöllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×