Lífið

Hinsta kveðja Quarashi verður á tónleikum á Nasa

Meðlimir Quarashi í sólinni í gær. Frá vinstri eru þeir Hössi, Tiny, Steini, Ómar og Sölvi.
Meðlimir Quarashi í sólinni í gær. Frá vinstri eru þeir Hössi, Tiny, Steini, Ómar og Sölvi.
„Allir góðir hlutir verða einhvern tíma að enda," segir Höskuldur Ólafsson, rappari í hljómsveitinni Quarashi.

Allra síðustu tónleikar Quarashi verða haldnir á Nasa laugardaginn 16. júlí. Eftir tónleikana leysist hljómsveitin aftur upp eftir stutta endurkomu, en í þetta skipti til frambúðar. „Mamma kemst ekki á Bestu útihátíðina, þannig að okkur fannst við hæfi að halda tónleika í bænum svo hún komist," segir Höskuldur.

Endurkoma Quarashi hefur ekki farið fram hjá neinum, en hljómsveitin kemur einnig fram á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum um helgina. 8.500 miðar hafa selst á hátíðina segja aðstandendur, en hljómsveitir á borð við Gus Gus, XXX Rottweiler og SSSól koma einnig fram.

Höskuldur segir Quarashi höfða til eldri hóps með lokatónleikunum í Reykjavík. „Við erum að stíla inn á aldurshópinn 50 til 73 ára," segir hann léttur. „Það er ekki fólkið sem er að fara á Bestu, en vill koma og sjá Quarashi. Við viljum sinna þessum aldurshópi, enda fær hann lítið að gera í skemmtanalífi borgarinnar."

En telurðu að meðlimir Quarashi öðlist innri frið eftir tónleikana í Reykjavík, þegar frekara tónleikahald hefur verið útilokað?

„Ég vona allavega að ég þurfi ekki að svara fleiri kommbakksímtölum eftir þetta. Þau hafa verið einu sinni í mánuði frá því að við hættum," segir Höskuldur.

Kvöldið fyrir tónleikana á Nasa verður haldið sérstakt kveðjuhóf á Sódómu. Hljómsveitin kemur þar fram í einhverri mynd ásamt fjölda annarra listamanna. Miðinn á lokatónleikana gildir inn, en þó aðeins á meðan húsrúm leyfir.

En hvernig stendur röddin sig?

„Ég er búinn að vera í námi í Englandi í tvö ár og hef ekkert sungið, ekki einu sinni karókí," segir Höskuldur. „Á fyrstu æfingunni byrjaði ég að öskra um leið og var voðalega hissa á því að verða rámur. Ég er á steratöflum og líður eins og Axl Rose. Við sáum hann einu sinni spila í Japan. Eftir hvert lag stökk hann baksviðs og fékk sterasprautu í hálsinn. Ég vona að það komi ekki til þess."

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×