Lífið

Hinsegin dagar með breyttum áherslum í ár

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
 Eva María er formaður Hinsegin daga.
Eva María er formaður Hinsegin daga. Vísir/Andri Marínó
Í dag hefst dagskrá Hinsegin daga sem verða nú haldnir í 18. skiptið. Eva María Þórarinsdóttir Lange er formaður Hinsegin daga hér á landi en hún segir að hátíðin hafi verið sett í „naflaskoðun“ í ár.

„Við erum búin að vera að velta því fyrir okkur hvers vegna við erum ennþá að halda þessar hátíðir. Það hefur orðið mikil þróun hér á landi og við erum komin með þannig séð öll réttindi sem við höfum verið að berjast fyrir. En svo koma fram raddir eins og Gylfi Ægisson sem eru ekki enn að skilja þetta. Við leggjum áherslu á fræðslu í ár,“ segir Eva en á dagskránni er meðal annars heimildarmynd sem fjallar um af hverju pride-hátíðir eru haldnar. Heimildarmyndin verður sýnd í samstarfi við kanadíska sendiráðið og það stendur að komu Bobs Christy sem er framleiðandi myndarinnar. Eftir sýningu verða pallborðsumræður.

Varðandi ummæli Gylfa Ægissonar segir Eva að fæstir taki þeim persónulega en hjarðhegðunin sem kemur í kjölfarið í kringum neikvæð og fávísleg ummæli geti farið fyrir brjóstið á þeim sem eru nýlega komnir út úr skápnum og aðstandendum.



Fjölbreytt dagskrá

Þróun á sér stað á hátíðinni þetta árið og er ætlunin að fara meira í dýptina. „Við verðum með fræðslufundi um málefni sem vilja oft gleymast eða hafa ekki enn komist upp á yfirborðið. Við ætlum ekki að gera þetta af því bara, við ætlum að fræðast um tilganginn. Dagskráin hjá okkur verður mjög fjölbreytt en það verða 30 viðburðir yfir hátíðina.“

Dagskráin hefst í dag með opnunarhátíð á Skólavörðustíg í hádeginu en þar hefur gatan verið máluð í öllum regnbogans litum ásamt því að ljósmyndasýning verður frá gleðigöngunni í gegnum árin. Ástæðuna fyrir fjölbreyttri dagskrá segir Eva vera að varpa ljósi á hversu ólíkt samkynhneigt fólk er. „Þó svo að ég sé lesbía þá er ég ekkert eins og sú næsta eða homminn hinum megin við götuna. Það er mikil þörf á fræðslu og að víkka sjóndeildarhringinn hjá fólki.“



Hápunkturinn á laugardaginn

Gleðigangan hefur verið vel sótt frá árinu 1999 og verður nú haldin á laugardaginn. „Það má segja að við séum með jákvætt vandamál hérna á Íslandi. Það verður alltaf svo mikil gleði og mikið af fólki, sem er auðvitað frábært, en það vill oft gleymast að þetta er mannréttindaganga og það er mikilvægt að leggja áherslu á það. Við erum enn að berjast fyrir sumu sem við vorum að berjast fyrir fyrir 20 árum en samfélagið hefur breyst til hins betra. Okkur langar líka að þakka okkur og þjóðinni fyrir stuðninginn.“



Samstarf í Skandinavíu

Hinsegin dagar á Íslandi byrjuðu nýlega að vinna að verkefni með Copenhagen Pride og Hinsegin dögum í Færeyjum og Grænlandi.

„Við og Köben erum stóru aðilarnir í þessu samstarfi en það hafa verið magnaðir hlutir að gerast í Færeyjum. Þróunin er hæg á Grænlandi en okkur langar að styrkja vináttutengslin og búa til vettvang til þess að hjálpa hvert öðru.“


Tengdar fréttir

Íhugar alvarlega að kæra Gylfa fyrir hatursáróður

Margir hafa hvatt Kristínu Sævarsdóttur, stjórnarmann Hinsegin daga, til að leggja fram kæru á hendur Gylfa Ægissyni fyrir ummæli sem bendla samkynhneigða við barnaníð og heilaþvott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×