Fótbolti

Hinn nýi Zlatan valdi Dortmund í staðinn fyrir Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander Isak skoraði 10 mörk fyrir AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Alexander Isak skoraði 10 mörk fyrir AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra. vísir/getty
Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupunum á sænska ungstirninu Alexander Isak frá AIK. Dortmund hafði betur í baráttu við Real Madrid um þennan efnilega leikmann sem hefur m.a. verið líkt við Zlatan Ibrahimovic.

Isak, sem er aðeins 17 ára gamall, sló í gegn með AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra. Þar lék hann með íslenska landsliðsmanninum Hauki Heiðari Haukssyni.

Isak skoraði 10 mörk í 24 deildarleikjum í fyrra, auk þriggja marka í sænsku bikarkeppninni.

Isak lék sinn fyrsta landsleik fyrir Svíþjóð 8. janúar síðastliðinn. Fjórum dögum síðar skoraði hann svo sitt fyrsta landsliðsmark í 6-0 sigri á Slóvakíu. Isak er yngsti markaskorari í sögu sænska landsliðsins.

Real Madrid sýndi Isak mikinn áhuga en strákurinn valdi frekar að fara til Dortmund sem hefur verið duglegt að sanka að sér efnilegum leikmönnum að undanförnu. Talið er að Isak hafi kostað Dortmund 7,3 milljónir punda.

Isak er ætlað að fylla skarð Kólumbíumannsins Adrián Ramos hjá Dortmund. Kínverska liðið Chongqing Lifan keypti Ramos frá Dortmund á dögunum en lánaði hann strax til Granada en félögin eru í eigu sömu aðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×