Menning

Hin ljóðræna þjáning

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sumir eiga sorgir og sumir eiga þrá nefnist dagskráin sem Valgerður, húsfreyja í Davíðshúsi, verður með á morgun.
Sumir eiga sorgir og sumir eiga þrá nefnist dagskráin sem Valgerður, húsfreyja í Davíðshúsi, verður með á morgun. Vísir/GVA
„Ég er einmitt að velja ljóð og var að lesa Skógarhindina þegar þú hringdir,“ segir Valgerður H. Bjarnadóttir, húsfreyja í Davíðshúsi á Akureyri, þegar hún svarar í símann.

Valgerður sér um dagskrá tengda ljóðum Davíðs Stefánssonar í húsinu á hverjum fimmtudegi klukkan þrjú og tekur eitthvað visst fyrir hverju sinni. Síðast var það Ítalíuferðin en á morgun ætlar hún að fjalla um ástina og sorgina.

„Langflest hinna viðkvæmu og tilfinningaþrungnu ljóða Davíðs eru í fyrstu bókunum hans. Þau fá á sig öðruvísi blæ í seinni bókunum, þá yrkir hann meira um þjóðina og landið,“ segir Valgerður en bætir við að inn á milli birtist þó alltaf hið blæðandi hjarta skáldsins.

Davíð orti mikið um ástina og sorgina í fyrstu bókunum.
„Þannig er ljóðið Skógarhindin, sem hefst svona: Langt inn í skóginn leitar hindin særð… það er í bók sem kom út 1960, bara fjórum árum áður en skáldið dó. Davíð notar dýr mikið sem táknmyndir og hvort hann er þarna að tala um sjálfan sig eða aðra manneskju…eða ljóðin sín, það veit enginn. Kannski er hann sjálfur farinn að horfast í augu við dauðann.“

Davíðshús er opið frá 13 til 17. Viðburðir þar í sumar eru hluti af Listasumri á Akureyri. Aðgangur að húsinu kostar 1.200 krónur en 600 krónur fyrir eldri borgara og frítt er fyrir börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×