Erlent

Hin fornu hof Palmyru ekki jafn mikið skemmd og óttast var

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óttast var að eyðilegging af hálfu ISIS væri mun meiri en raun bar vitni.
Óttast var að eyðilegging af hálfu ISIS væri mun meiri en raun bar vitni. Vísir/EPA
Hinar fornu byggingar í sýrlensku borginni Palmyra eru ekki jafn mikið skemmdar og óttast var eftir skemmdarverk ISIS. Sýrlenski stjórnarherinn hefur náð tökum á borginni á ný eftir bardaga við liðsmenn ISIS.

Palmyra er að finna um 200 kílómetrum norðaustur af sýrlensku höfuðborginni Damaskus. Borgin stofnuð um tvö þúsund árum fyrir Krist og er á heimsminjaskrá UNESCO. ISIS-liðar höfðu framið skemmdarverk á hinum fornu hofum Palmyru og birtu myndbönd af eyðileggingunni á minjunum sem taldar eru vera ómetanlegar.

Helsti fornleifafræðingur Sýrlands segist hafa fundið fyrir mikilli gleði eftir að rannsókn leiddi í ljós að skemmdirnar eru ekki jafn miklar og talið var í fyrstu.

„Við bjuggumst við hinu versta en heilt yfir lítur þetta vel út,“ sagði Maamoun Abdulkarim sem fór fyrir rannsókninni á minjunum í Palmyra eftir að stjórnarherinn náði yfirráðum yfir borginni á ný.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×