Fótbolti

Hin fimmtán ára gamla Sveindís Jane í æfingahóp Freys

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir er hér númer 16 og Alexandra Jóhannsdóttir er númer 8 í hópi félaga sinna í sautján ára landsliðinu.
Sveindís Jane Jónsdóttir er hér númer 16 og Alexandra Jóhannsdóttir er númer 8 í hópi félaga sinna í sautján ára landsliðinu. Mynd/Fésbókarsíða KSÍ
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið hóp til úrtaksæfinga helgina 25. til 27. nóvember.  

Freyr valdi eingöngu leikmenn sem leika með félagsliðum hér á landi og meðal þeirra eru leikmenn sem leikið hafa með yngri landsliðum Íslands á árinu.

Meðal ungu nýliðanna í æfingahópnum er hin fimmtán ára gamla Sveindís Jane Jónsdóttir frá Keflavík, sextán ára gamla Alexandra Jóhannsdóttir frá Haukum og hin sextán ára gamla Guðný Árnadóttir frá FH.

Sveindís Jane Jónsdóttir hefur skorað 7 mörk í 9 leikjum með sautján ára landsliðinu þrátt fyrir að vera spila upp fyrir sig. Hún skoraði 27 mörk í 19 leikjum í 1. deildinni síðasta sumar þar af 9 mörk í 5 leikjum í úrslitakeppninni.  Mörg Pepsi-deildarlið voru á eftir henni eftir að Keflavík komst ekki upp en Sveindís Jane ákvað að gera nýjan samning við Keflavík.

Alexandra Jóhannsdóttir hefur þegar leikið 20 leiki fyrir 17 ára landsliðið og skoraði í þeim 9 mörk. Hún var fyrirliði í sjö leikjum sautján ára landsliðsins í ár.

Guðný Árnadóttir er ein af þeim sem spilaði í Pepsi-deildinni í sumar. Guðný var fyrirliði í þremur leikjum 17 ára landsliðsins í ár en hún á að baki 18 leiki fyrir 17 ára landslið Íslands.

Hin sautján ára gamla Stjörnukona Agla María Albertsdóttir er einnig í æfingahópnum en hún stóð sig mjög vel með Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Pepsi-deildinni og var með 2 mörk og 5 stoðsendingar í 17 leikjum á sínu fyrsta tímabili í Garðabænum.

Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og má sjá hópinn hér að neðan.

Selma Sól Magnúsdóttir Breiðablik

Ingibjörg Sigurðardóttir Breiðablik

Sonný Lára Þráinsdóttir Breiðablik

Hildur Antonsdóttir Breiðablik

Guðný Árnadóttir FH

Alexandra Jóhannsdóttir Haukar

Sigríður Lára Garðarsdóttir ÍBV

Sóley Guðmundsdóttir ÍBV

Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir ÍBV

Sveindís Jane Jónsdóttir Keflavík

Guðmunda Brynja Óladóttir Selfoss

Agla María Albertsdóttir Stjarnan

Berglind Hrund Jónasdóttir Stjarnan

Lára Kristín Pedersen Stjarnan

Sigrún Ella Einarsdóttir Stjarnan

Arna Sif Ásgrímsdóttir Valur

Thelma Björk Einarsdóttir Valur

Mist Edvardsdóttir Valur

Elín Metta Jensen Valur

Lillý Rut Hlynsdóttir Þór/KA

Anna Rakel Pétursdóttir Þór/KA

Írunn Þ. Aradóttir Þór/KA




Fleiri fréttir

Sjá meira


×