Erlent

Hillary Clinton: Gaf í skyn að Trump væri líklegur til þess að hefja kjarnorkustríð bara út af pirringi

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Það gæti orðið ljóst næsta þriðjudag hvort Clinton verði næsta forsetaefni demókrata.
Það gæti orðið ljóst næsta þriðjudag hvort Clinton verði næsta forsetaefni demókrata. Vísir/Getty
Hillary Clinton sem berst nú fyrir því að verða forsetaefni demókrata í komandi kosningum segir utanríkisstefnu Donald Trump vera hættulega samhengislausa. Hún gekk svo langt að gefa það í skyn að Trump yrði jafnvel líklegur til þess að hefja kjarnorkustríð einungis vegna þess að einhver færi í taugarnar á honum. Clinton lét þessi orð falla á ráðstefnu í San Diego en nú er hafinn lokahnykkur forvalsins.

„Hann telur sig hafa reynslu í utanríkismálum vegna þess að hann stjórnaði Ungfrú Alheimur-keppni í Rússlandi,“ sagði hún við gífurleg hlátrasköll úr salnum. Hún lét einnig þau orð falla að það yrðu söguleg mistök hjá bandarísku þjóðinni ef Trump næði kjöri.

Trump hefur meðal annars sagst ætla að; byggja vegg á milli Bandaríkjanna og Mexíkó, heimsækja Norður-Kóreu til þess að tala Kim Jong Un af því að framleiða kjarnavopn, herða pyntingaaðgerðir gegn óvinum landsins og að meina múslimum aðgangi að landinu.

Úrsllitin gætu ráðist á þriðjudag

Clinton hefur enn nokkuð forskot á keppinaut sinn Bernie Sanders en kosið verður í sex fylkjum á þriðjudag. Þar á meðal ráðast úrslit í Kaliforníu sem er stærsta fylkið. Þar eru hvorki meira né minna en 548 kjörmenn í pottinum.

Talað er um að Clinton vanti aðeins 70 til þess að hljóta útnefninguna en það þarf ekkert endilega að vera. Fari svo að Sanders sigri í Kaliforníu gæti það mögulega haft þau áhrif að svo kallaðir ofur-kjörmenn ákveði að styðja hann frekar en Clinton.

Fréttastofa Reuters greindi frá.


Tengdar fréttir

Rúm tuttugu prósent hata Trump og Clinton

Um sextíu prósentum kjósenda í Bandaríkjunum er illa við líklega forsetaframbjóðendur stóru flokkanna tveggja, demókratann Hillary Clinton og repúblikanann Donald Trump. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun NBC en kosið verður í nóvember.

Trump siglir fram úr Clinton

Donald Trump, forsetaframbjóðandi flokks repúblikana í Bandaríkjunum, mældist í gær í fyrsta sinn með meira fylgi en líklegur andstæðingur hans, Hillary Clinton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×