Formúla 1

Hill: Rosberg verður sterkari í ár

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton og Rosberg ásamt liðsmönnu Mercedes liðsins.
Hamilton og Rosberg ásamt liðsmönnu Mercedes liðsins. Vísir/Getty
Damon Hill, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 telur að vonbrigði Nico Rosberg með annað sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna síðustu tvö ár muni efla hann í baráttunni við ríkjandi heimsmeistara, Lewis Hamilton.

Rosberg hefur undanfarin tvö ár þurft að sætta sig við annað sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hamilton, sem er liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, hefur í bæði skiptin orðið heimsmeistari.

Hill þekkir sporin sem Rosberg stendur í vel af eigin reynslu. Þegar Hill ók fyrir Williams liðið tapaði hann titlinum til Michael Schumacher árin 1994 og 1995. Schumacher ók þá fyrir Benetton liðið. Hill varð svo heimsmeistari árið 1996. Hill hefur trú á að Rosberg hafi það sem til þarf til að snúa blaðinu við.

„Ég held að Rosberg sé ákveðnari en áður,“ sagði Hill í samtali við Sky Sports. Hill er eini sonur heimsmeistara í Formúlu 1 sem hefur tekist að verða heimsmeistari líka, Graham Hill, faðir Damon varð tvisvar heimsmeistari árin 1962 og 1968. Rosberg myndi bæta sér og föður sínum í þeirra félagsskap, takist honum að næla í titilinn. Keke Rosberg, faðir Nico varð heimsmeistari ökumanna 1982.

„Ég held að við tapið í Austin, þegar hann tapaði möguleikanum á að berjast um titilinn við Lewis (Hamilton) og kastaði derhúfunni í hann eins og frægt er orðið, hafi orðið kúvending. Ég held að Nico hafi sagt við sjálfan sig, jæja, ég ætla ekki að taka þessu þegjandi lengur, enda vann hann allar þær keppnir sem eftir voru,“ sagði Hill.

„Hann getur alveg orðið annar maðurinn til að búa til heimsmeistara-feðga með því að verða heimsmeistari sjálfur. Hann veit að sennilega er tíminn að skornum skammti og kannski verður hann því ákveðnari í að tryggja sér titilinn og erfiðari að halda aftur af,“ sagði Hill að lokum.


Tengdar fréttir

Renault sviptir hulunni af 2016 bílnum

Renault afhjúðaði Formúlu 1 bíl sinn fyrir árið 2016, fyrst allra liða. Renault snýr aftur í ár sem rekstraraðili liðs með RS16 bílinn.

Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault

Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1.

Ekki góðar fréttir af Michael Schumacher

Talsmaður Michael Schumacher var ekki tilbúinn að tjá sig um nýjustu fréttirnar af formúlu eitt goðsögninni en fyrrum yfirmaður Schumacher hjá Ferrari segir þær ekki vera góðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×