Lífið

Hildur Lilliendahl selur íbúðina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hildur Lilliendahl er búin að setja íbúð sína í Karfavogi á sölu en eignin er 103,2 fermetrar. Ásett verð er 29,9 milljónir.

Íbúðin er í kjallara og búin fjórum herbergjum. Í eldhúsi er eikarinnrétting og flísar á gólfi. Tvær stofur eru í íbúðinni en önnur er nýtt sem herbergi. Í sameign er svo þvottahús og þurrkaðstaða.

Hildur er búin að vera dugleg að auglýsa íbúðina í dag á samskiptamiðlunum Twitter og Facebook og segist meðal annars bjóða áhugasömum kaupendum veitingar.

„Omg eruði að djóka hvað þetta er sjúklega frábær eign á yndislegum stað í grónu og fallegu hverfi? Ég hef það fyrir satt að eigendur taki á móti áhugasömum gestum með kaffi og púrtvíni, að minnsta kosti svona rétt yfir jólin. Hver vill ekki kaupa þessa snilld?“ skrifar Hildur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×