Innlent

Hildur Lilliendahl kvartaði

BBI skrifar
Frosti Logason, þáttarstjórnandi útvarpsþáttarins Harmageddon, veit ekki hvort eða hvenær von er á þeim félögum Mána Péturssyni aftur í loftið, en þeim hefur verið vikið tímabundið frá störfum vegna brota á siðareglum útvarpsstöðvarinnar.

Það var Hildur Lilliendahl sem kvartaði til útvarpsstöðvarinnar eftir viðtal sem fór í loftið 22. nóvember síðastliðinn þar sem viðmælandi tvímenninganna talaði "fjálglega um kvenfólk og kynfæri við glaðlegar og gagnrýnislausar undirtektir þáttarstjórnenda". Hildur fór fram á að eitthvað yrði gert í málinu og útvarpsstöðin hefur nú orðið við þeirri ósk.

Það var yfirstjórn X-ins 977 sem tók umrædda ákvörðun, en Frosti og Máni eiga báðir sæti í stjórninni. Þeir komu því sjálfir að ákvörðuninni og mótmæltu henni ekki.

"Við náttúrlega höfum sjálfir gagnrýnt fjölmiðlafólk sem spyr ekki gagnrýnna spurninga. Í þessu tilfelli vorum við með einhvern vitleysing í viðtali. Þá töldum við bara að ummæli hans myndu dæma sig sjálf," segir Frosti, en viðmælandinn sagði meðal annars að allar konur væru haldnar fíkn í kynlíf og hann myndi lækna konur af þeim sjúkdómi. Viðtalið í heild má nálgast hér að ofan.

"Við spurðum hann vissulega ekki gagnrýnna spurninga og okkur var ekki stætt á því að láta þetta kyrrt liggja," segir Frosti og útskýrir að með því að víkja tímabundið frá störfum axli þeir ábyrgð vegna þess. "Við erum hlyntir því að fjölmiðlafólk axli ábyrgð ef það gerir mistök. Við eigum að vera í því hlutverki að spyrja gagnrýnna spurninga og þetta voru klárlega mistök af okkar hálfu," segir Frosti.

Siðareglurnar sem tvímenningarnir eru taldir hafa brotið eiga að ýta undir heilindi, drengskap og feminísk viðhorf starfsmanna. Þar segir enn fremur að hvers kyns kvenfyrirlitning kunni að varða sektum eða brottrekstri sem framkvæmdastjórn félagsins ákveður hverju sinni.

Umrædd ákvörðun var tekin fyrr í dag og ekki hefur verið ákveðið hvenær eða hvort þeir snúa aftur til starfa. "Það er yfirstjórnin sem sér um að framfylgja þessum siðareglum og tekur slíkar ákvarðanir," segir Frosti, en eins og áður segir eiga tvímenningarnir sjálfir sæti í stjórninni.

Frosti veit ekki til þess að þáttastjórnendur hafi axlað ábyrgð með þessum hætti áður hér á landi. "Nei þetta er alveg fordæmalaust held ég," segir hann.


Tengdar fréttir

Þáttastjórnendum Harmageddon tímabundið vikið úr starfi

Stjórnendum Harmageddon á útvarpsstöðinni X 977 hefur verið gert að sæta brottrekstri um óákveðin tíma vegna brota á siðareglum útvarpsstöðvarinnar. Yfirstjórn X-ins 977 hefur tekið þessa ákvörðun í kjölfar formlegrar kvörtunar sem fyrirtækinu 365 barst frá nafntoguðum mannréttindafrömuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×