Lífið

Hildur Líf giftir sig

Ellý Ármanns skrifar
Hildur Líf, 24 ára, förðunarfræðingur og stílisti gekk í heilagt hjónaband á sunnudaginn var. Sá heppni heitir Albert Higgins, 27 ára lögfræðinemi sem býr vestan hafs í Bandaríkjunum í Arizona.

Vinkonur Hildar sáu um að gæsa hana með stæl.
Frábær dagur

Gæsunin var æðisleg. Lilja Ingibjargar skipulagði hana ásamt nokkrum skvísum. Það var farið var í leiðangur í Smáralind þar sem ég átti að grínast heilan helling í fólki klædd sem álfadrottning. Svo fórum við í bogfimi, fish spa" og út að borða á Sushi samba," segir Hildur Líf.



Hildur Líf var klædd sem álfadrottning þennan dag.
Fallegir hringar brúðhjónanna.
Brúðguminn hannaði hringinn

Albert hannaði hringinn en hann er úr gulli með pure clearity demanti ásamt gamla íslenska blóma mynstrinu sitthvoru megin og hjarta að framan með demöntum."

Hann er yndislegur maður sem getur allt en hans hringur var gerður af Ingu Björk gullsmið og er þríhyrningskantaður."


Hildur Líf var vægast sagt glæsileg þegar hún gekk að eiga Albert.
Giftu sig 14.september 2014

Þegar talið berst að brúðkaupinu segir hún einlæg: Brúðkaupið er algjört einkamál en við giftum okkur 14.9.14 utan dyra með kertum allt i kring ásamt góðum hóp af fólki og héldum siðan veislu."


Nöfn,, dagsetning og falleg setning „Amazing lif together" var rituð á glös brúðhjónanna.
Jógvan Hansen söng í upphafi athafnarinnar og veislustjóri var Elísa Davíðsdóttir. 

Stórglæsileg brúðhjón.
Hildur Líf var klædd í síðan blúndukjól með fallegan blómakrans í hárinu.

Brúðhjónin skáru tertuna saman þennan eftirminnilega dag í lífi þeirra.


Tengdar fréttir

Arnar Grant giftir sig

Stórglæsileg brúðhjónin yfirgáfu kirkjuna á rauðum golfbíl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×