Tónlist

Hildur frumsýnir nýtt myndband: Tók upp í uppáhalds borginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur gerir það gott.
Hildur gerir það gott.
Tónlistarkonan Hildur gefur út sitt þriðja lag og myndband í dag og nefnist lagið Would You Change? Lag og texta samdi Hildur sjálf en um pródúseringu sá Janus Rasmussen, kenndur við Kiasmos og Bloodgroup.

Til þess að gera myndbandið fór Hildur til Berlínar þar sem það var tekið upp. Andrea Björk Andrésdóttir sá um leikstjórn, upptökur og klippingu. Vigdís Erla Guttormsdóttir kom einnig að myndatöku og Kristjana Björg Reynisdóttir sá um stílerseringuna.

„Ástæðan fyrir að við gerðum myndbandið í Berlín var að Andrea var nýflutt þangað og spurði mig hvort mig langaði ekki bara að skella mér út? Þar sem Berlín er ein af mínum uppáhalds borgum þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um,“ segir Hildur.

„Mér fannst líka hugmyndin um borgina að næturlagi passa fullkomlega við lagið og stemmninguna. Við tókum myndbandið upp á þremur kvöldum, aðallega í Neukölln hverfinu. Við fengum líka frábæran  hóp af Íslendingum búsettum í Berlín til að koma og leika í myndbandinu og endaði það í  ágætis Íslendingapartíi sem var mjög skemmtilegt.“

Á döfinni hjá Hildi eru sjö tónleikar á Iceland Airwaves hátíðinni og því í mörgu að snúast. Þeir sem vilja sjá Hildi er bent á eftirfarandi dagskrá:

HILDUR Á AIRWAVES

MIÐVIKUDAGUR - LAUNDROMAT-17:00

FIMMTUDAGUR - AMERICAN BAR - 16:00 - 12 TÓNAR - 17:45

FÖSTUDAGUR - ODDSSON - 12:00 - NASA (ON VENUE) - 20:00

LAUGARDAGUR - BRYGGJAN - 14:00  - HARPA KALDALÓN (ON VENUE) - 01:00






Fleiri fréttir

Sjá meira


×