Lífið

Hildur: Glamúr Pálína ein í heiminum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hildur Kristín Stefánsdóttir tónlistarkona eða bara Hildur sú sem sló ærlega í gegn með laginu Walk With You sleppir nýju lagi og myndbandi lausu í dag. Lagið heitir Bumpy Road er í stíl við slagarann hennar síðasta og á myndbandinu að dæma er þar verið að fjalla um hvernig einmanaleikinn spyr ekki um þjóðfélagsstöðu. Það sýnir Hildi í glæsihúsi að berjast við að drepa tímann.

Myndbandið er frumsýnt á Vísi og það má sjá hér að ofan.

„Hugmyndin er kannski sú að fólk lítur kannski út fyrir að eiga besta lífið séð utan frá en þegar það er skoðað betur þá á það ekkert endilega besta lífið bak við tjöldin,“ segir Hildur. „Þetta er svona nútíma Palli er einn í heiminum, nema bara glamúrkona.“

Kastali í Reykjanesbæ

Myndbandið er tekið í fallegu einbýlishúsi í Reykjanesbæ sem Hildur og leikstjórarnir Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir og Birta Rán Björgvinsdóttir fundu á netinu.

„Þetta er mjög óíslenskt hús. Lítur út eins og kastali að utan og allt mjög glæsilegt að innanverðu.“

Allt annar heimur en með Rökkurró

Hildur starfaði með hljómsveitinni Rökkurró áður en fór að gera sykurhúðaða popptónlist á eigin vegum. Rökkurró spilar angurværa og á tímabili sveimkennda rokktónlist og er því stökkið töluvert.

„Það er mjög fyndið að hafa verið í bandi sem aðeins þeir sem voru mjög mikið að spá í tónlist sem hlustuðu. Fara svo út í það að gera tónlist þar sem maður nær til allra, barna og gamals fólks. Það er skemmtilegt að prófa bæði, þetta er allt annar heimur.“

Ertu byrjuð að vera vör við það að krakkar séu að stara á þig út á götu?

„Já, það er byrjað að gerast. Það er bara krúttlegt. Ég hef líka lent í því að krakkar eru að dingla bjöllunni minni heima bara til að spjalla.“

Hildur stefnir á tónleikahald í sumar og næstu tónleikar verða á KexPort í næsta mánuði.

Hér fyrir neðan má svo sjá myndbandið við slagarann hennar I´ll Walk With You.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×