Handbolti

Hildigunnur og Birna Berg verða samherjar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hildigunnur er í íslenska landsliðinu sem mætir Svartfjallalandi í undankeppni HM í næsta mánuði.
Hildigunnur er í íslenska landsliðinu sem mætir Svartfjallalandi í undankeppni HM í næsta mánuði. vísir/erni
Handboltakonan Hildigunnur Einarsdóttir er genginn til liðs við þýska liðið Koblenz/Weibern. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Hildigunnur skrifaði undir eins árs samning við Koblenz með möguleika á einu ári til viðbótar.

Hjá Koblenz hittir Hildigunnur fyrir stöllu sína úr íslenska landsliðinu, Birnu Berg Haraldsdóttur, sem er einnig gengin í raðir félagsins.

Koblenz féll úr þýsku úrvalsdeildinni á dögunum en stefnir á að endurheimta sæti sitt þar á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×