Handbolti

Hildigunnur: Það gefst ekki öllum tækifæri til að komast í svona öflugt lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hildigunnur Einarsdóttir.
Hildigunnur Einarsdóttir. Vísir/Valli
Íslenski landsliðslínumaðurinn Hildigunnur Einarsdóttir mun spila í þýsku Bundesligunni á næsta tímabil en hún hefur hoppað upp um eina deild í Þýskalandi og gert samning við stórliðið HC Leipzig.

HC Leipzig hefur verið með Íslending innan sinna raða síðustu ár því þar hefur Þorgerður Anna Atladóttir verið á leikmannalistanum en lítið spilað vegna meiðsla. Þorgerður Anna er á heimleið en þýska liðið fann sér aðra íslenska landsliðskonu.

„Þetta er draumi líkast. Að ná samningi við Leipzig var nokkuð sem ég hélt að yrði aldrei möguleiki fyrir mig," sagði Hildigunnur Einarsdóttir í viðtali við Ívar Benediktsson í Morgunblaðinu í morgun.

Það ræst um helgina hvort að Hildigunnur verður í titilvörn á næsta tímabili eða ekki því HC Leipzig spilar um helgina hreinan úrslitaleik við Thüringer HC um þýska meistaratitilinn.

„Það gefst ekki öllum tækifæri til að komast í svona öflugt lið og hvort sem árin mín hjá Lepzig verða eitt eða fleiri er ég himinlifandi," sagði Hildigunnur í fyrrnefndu viðtali.

Hún er orðin 28 ára gömul og hefur spilað erlendis síðan að hún yfirgaf Val 2012. Síðan þá hefur þessi öflugi línumaður spilað með Tertnes í Noregi, með BK Heid í Svíþjóð og nú síðast með þýska b-deildarfélaginu VL Koblenz/Weibern.

„Ég er viss um að ég verði ekkert annað en betri leikmaður. Allir leikmenn eru mjög góðir og það segir sig sjálft að þegar maður fer að æfa og leika með slíkum gæðahandboltakonum tekur maður framförum," sagði Hildigunnur. Hún fór á nokkrar æfingar hjá Leipzig fyrir tveimur vikum en stóð sig svo vel að nú er hún komin með samning.

Hildigunnur er þó ekki að leiðinni út alveg strax. Hún mun taka þátt í næstu verkefnum íslenska landsliðsins í júní en á síðan að mæta út til Leipzig 18. júlí. „Ég fæ gott frí á Íslandi sem fer að hluta til í að búa mig undir dvölina hjá Leipzig," sagði Hildigunnur Einarsdóttir við Morgunblaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×