Fótbolti

Higuain tryggði Juventus sigur í fyrsta leiknum

Higuain skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í ítölsku úrvalsdeildinni fyrir Juventus.
Higuain skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í ítölsku úrvalsdeildinni fyrir Juventus. vísir/getty
Ítölsku meistararnir í Juventus byrja nýtt tímabil á 2-1 sigri á Fiorentina, en ítalska deildin var flautuð af stað í dag.

Sami Khedira kom meisturunum yfir á 37. mínútu, en Fiorentina jafnaði metin á 70. mínútu.

Það liðu ekki nema fimm mínútur þangað til hinn rándýri Gonzalo Higuain tryggði Juventus sigurinn með marki eftir darraðadans.

Lokatölur 2-1 og meistararnir komnir á blað á Ítalíu. Fiorentina án stiga eftir fyrstu umferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×