Innlent

Hið versta veður um landið norðanvert síðdegis í dag

Bjarki Ármannsson skrifar
Spáð er hríðaveðri, fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu, fram á kvöld um landið norðanvert.
Spáð er hríðaveðri, fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu, fram á kvöld um landið norðanvert. Vísir/Pjetur
Hið versta veður verður um allt norðanvert landið síðdegis í dag, bæði hvað varðar vind og ofankomu. Spáð er hríðaveðri, fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu, fram á kvöld.

„Það er svosem ekkert óeðlilegt að svona veður komi í apríl og svo koma svona veður annað slagið í maí líka,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Það er búið að vera svolítið lengri kafli með nokkuð góðu veðri, þannig að þetta eru svona viðbrigði fyrir flesta.“

Veður er þegar orðið nokkuð slæmt á Vestfjörðum og austan Skagafjarðar. Austanlands hvessir og snjóar einkum eftir hádegi og horfur á stórhríðaveðri síðdegis og í kvöld um landið norðaustanvert.

Upp úr klukkan fimm til sex hvessir suðaustanlands og verður sviptivindasamt frá Lómagnúpi austur í Berufjörð. Norðvestantil gengur veður smám saman niður í kvöld en þó má búast við skafrenningi.

Óli Þór segir að fólk sem búið er að taka fram garðhúsgögn eða trampólín þurfi ef til vill að huga að því að færa þau til, sérstaklega á landinu norðan- og austanverðu.

Uppfært 12.20: Búið er að loka bæði Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum vegna veðursins. Umferð er beint um Innstrandaveg.

Uppfært 13.50: Flugferðum til og frá Ísafirði hjá Flugfélagi Íslands hefur verið aflýst vegna veðursins. Enn er þó flogið til og frá Akureyri og Egilsstöðum.

Uppfært 16.00: Mývatns-, Möðrudals- og Vopnafjarðarheiði hefur einnig verið lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×