Lífið

Hið ömurlega ár 2016 gert upp með lagi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Flo og Joan eru pirraðar.
Flo og Joan eru pirraðar. Skjáskot
Bresku sönggrínistarnir Flo og Joan eru langt frá því sáttar með hvernig árið 2016 lék heimsbyggðina.

Fjölmargar dáðar stjörnur kvöddu okkur á árinu sem einkenndist af stórtíðindum í alþjóðastjórnmálum í bland við voðaverk og síaukinn flóttamannastraum.

Systurnar, til þess að tappa af óánægju sinni, ákváðu því að gera upp árið með fjörugu lagi þar sem hvergi er til sparað í blótsyrðunum.

„Þú ert í alvöru bremsufar allra ömurlegra ára,“ segja þær Flo og Joan í uppgjöri sínu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×