Tónlist

Heyrðu nýjasta lagið frá The Weeknd sem hann vann með Daft Punk

Birgir Olgeirsson skrifar
Tónlistarmaðurinn The Weeknd var varla búin að tilkynna heimsbyggðinni að hann væri að gefa út plötuna Starboy þegar hann sendi frá sér titillag plötunnar, hið samnefnda Starboy, sem hann vann með Daft Punk.

Þetta er fyrsta samstarf Daft Punk við einhvern listamann síðan þeir unnu að laginu Gust of Wind með Pharrell sem var á plötunni Girl.

The Weeknd, sem heitir réttu nafni Abel Tesfaye, minnist á Brad Pitt í Star Boy en það er þó ekki gert í tengslum við skilnaðinn umtalaða við Angelinu Jolie, heldur er þetta skírskotun í árið 1994 þegar myndirnar The Legends of The Fall og Interview with the Vampire komu út. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×