Tónlist

Heyrðu fyrsta lag DJ Óla Geirs á íslensku

Birgir Olgeirsson skrifar
„Þetta er smá ástarsaga sem Frikki syngur um,“ segir Ólafur Geir Jónsson, betur þekktur sem DJ Óli Geir, um fyrsta lag sitt á íslensku. Lagið heitir Sumar sem leið en Friðrik Dór Jónsson samdi textann ásamt því að syngja lagið og sá þríeykið í StopWaitGo um hljóðblöndun.

Þá var einnig tekið upp myndband við lagið en um leikstjórn þess sáu Birgir Ólafur Pétursson og Brynjar Birgisson en aðalleikarar myndbandsins eru Lilja Eivor Gunnarsdóttir Cederborg og Ragnar Gabríel Ragnarsson.

„Þetta er sumarlagið í ár,“ segir DJ Óli Geir um lagið sem má heyra hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×