Innlent

Heyr lokabaráttuna við krabbann

Vilhjálmur Óli (til hægri) ásamt Sigþóri Má Valdimarssyni sem var með fegurstu mottuna í ár.
Vilhjálmur Óli (til hægri) ásamt Sigþóri Má Valdimarssyni sem var með fegurstu mottuna í ár.
Vilhjálmur Óli Valsson, sigurvegari í Mottumars árið 2013, segir að stjórnvöld þurfi að endurskoða forgangsröðunina hjá sér þegar komi að heilbrigðiskerfinu.

Vilhjálmur Óli safnaði mest allra keppenda í Mottumars sem lauk formlega í gær. 1.257.000 milljónir var upphæðin í nafni Vilhjálms á heimasíðu keppninnar og var hann rúmum 200 þúsund krónum á undan Páli Sævari Guðjónssyni sem hafnaði í öðru sæti.

„Það skipti ekki höfuðmáli í hvaða nafni framlögin voru sett," sagði Vilhjálmur í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2 í gær. Það sé heildarsöfnunin sem skipti máli enda vanti nauðsynlega fjármagn í geirann.

Vilhjálmur greindist með krabbamein í vélinda á síðasta ári. Hann segir baráttuna við sjúkdóminn hafa ljómandi vel fram að jólahátíðinni.

„Svo fór leiðin að liggja niður á við og má segja að verið sé að taka síðustu skrefin næstu mánuðina," segir Vilhjálmur.

Endurskoða þarf forgangsröðunina
Verðlaunahafar í Mottumars 2013
Vilhjálmur Óli segir að sigur sinn í keppninni hafi komið honum verulega á óvart. Hann hafi ekki gert sér neinar vonir að honum myndi ganga svo vel.

„Ég gerði voðalega lítið í þessu sjálfur. Ég póstaði þessu á Facebook þegar ég skráði mig þann 8. mars. Síðan hefur stuðningsnetið mitt séð um afganginn," segir Vilhjálmur. Aðspurður um hvernig honum finnist heilbrigðiskerfið hér á landi segir hann:

„Ég er hæstánægður með starfsfólkið og alla þá þjónustu sem ég hef fengið. Kerfið sem slíkt hefur greinilega verið í fjársvelti og mér finnst að stjórnvöld þurfi að endurskoða forgangsröðina hjá sér."

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×