Fótbolti

Hetjan: Njótum augnabliksins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Argentína tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á HM með sigri á Hollandi í vítaspyrnukeppni. Sergio Romero, markvörður Argentínu, var hetja sinna manna en hann varði tvær spyrnur Hollands í vítaspyrnukeppninni.

„Njótum augnabliksins. Við ætlum að gera það og á morgun hefjum við undirbúning fyrir úrslitaleikinn,“ sagði Romero eftir leikinn í kvöld.

„Ég er afskaplega glaður og ánægður með allt saman. En staðreyndin er sú að vítaspyrnakeppni ræðst fyrst og fremst á heppni.“

„Ég hafði trú á sjálfum mér og sem betur fer fór allt vel að lokum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×