Innlent

Hetja úr Hafnarfirði skipti sköpum í Ljósavatnsskarði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ótrúlegt má telja að allir hafi komist lífs af.
Ótrúlegt má telja að allir hafi komist lífs af. Skjáskot úr myndbandinu.
22 ára Hafnfirðingur er afar stoltur af föður sínum sem kom ökumanni bifreiðar til aðstoðar á ögurstundu eftir alvarlegan árekstur í Ljósavatnsskarði þann 24. nóvember síðastliðinn. Tveir ferðamenn frá Malasíu voru í hinum bílnum og náðu árekstrinum á myndband eins og fjallað var um á Vísi í gær. Annar ferðamannanna og ökumaður hins bílsins slösuðust alvarlega og hafa gengist undir aðgerðir. Þau eru þó ekki í lífshættu.

Sæmundur Bjarni Sæmundsson lýsir því í Fésbókarfærslu í gær að faðir sinn, Sæmundur Bjarnason, hafi komið fyrstur á vettvang. 

„Eftir slysið kom upp eldur í öðrum bílnum en ökumaðurinn var illa slasaður og gat ekki komist frá bílnum af sjálfsdáðum og sem betur fer var pabbi kominn á þeim tíma og gat dregið manninn frá áður en bíllinn varð alelda,“ segir Sæmundur Bjarni og lýsir gangi mála mínúturnar eftir slysið.

„Í hinum bílnum var einnig mjög slasaður einstaklingur sem gat tjáð sig um verki í baki og þar sem ekki þótti hætta stafa af því að halda kyrru fyrir í bílnum tók pabbi þá rökréttu ákvörðun um að halda þeim einstakling kyrrum og stöðugum.“

Myndband frá árekstrinum má sjá hér að neðan.

 

Strætóbílstjóri kom til aðstoðar

Samkvæmt heimildum Vísis kom strætóbílstjóri á vettvang fljótlega eftir að Sæmundur eldri keyrði fram á slysið. Sæmundur bað hann um að ná í slökkvitæki og gerðu þeir tilraun til að slökkva eldinn. 

Bíllinn fuðraði hins vegar upp svo þeir tóku ákvörðun um að ekki væri reynandi að slökkva í eldinum. Sæmundur Bjarni vildi ekki tjá sig um björgunaraðgerðirnar þegar Vísir sló á þráðinn til hans í gærkvöldi.

Annar ferðamannnanna er við ágæta heilsu og var stefnt á að útskrifa hann af Sjúkrahúsi Akureyrar samkvæmt upplýsingum að norðan í gær. Hinn hefur gengist undir tvær stórar aðgerðir en er ekki í lífshættu.

Íslenski karlmaðurinn sem ók hinum bílnum slasaðist mjög alvarlega, var í öndunarvél í fjóra sólarhringa og gekkst undir stóra aðgerð. Hann er nýkominn úr öndunarvél, er ekki í lífshættu en á langa baráttu framundan.

Fyrir viku síðan átti sér stað harður árekstur, í Ljósavatnsskarði fyrir norðan. Annar tveggja bíla skrikaði til í hálku...

Posted by Sæmundur Bjarni Sæmundsson on Wednesday, December 2, 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×