Innlent

Herskip sigldu inn í Hvalfjörðinn

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Í tengslum við kafbátaeftirlitsæfingu NATO  söfnuðust herskip saman á Faxaflóa í morgun og sigldu í fylkingu inn Hvalfjörðinn til að minnast þeirra sem létust í árásum kafbáta og herskipa nasista á skipalestir bandamanna í síðasti heimstyrjöldinni.

75 ár eru síðan skipalest bandamanna, PQ17, hélt frá Hvalfirði til Kólaskaga í Rússlandi til að koma björgum til Rússlands þegar stríðið á austurvígsstöðvunum stóð sem hæst.

Skipalestin lenti í miklum hremmingum á leiðinni til Rússlands en þjóðverjar gerðu árásir á flutningaskipin. Á annað hundrað manns létust en af 35 skipum komust aðeins 11 til hafnar.

Níu Atlandshafsbandalagsríki tóku þátt í deginum en herskipin eru á landinu vegna kafbátaeftirlitsæfingar  Atlandshafsbandalagsins sem fer fram um þessar mundir.

Magnus Þór Hafsteinsson rithöfundur var meðal boðsgesta um borð í Tý sem fór fyrir skipalestinni. Hann útskýrir að ástæða þess að skipalestin fór af stað frá Hvalfirði séu góðar aðstæður í Hvalfirði. Hann sé skjólgóður og auðvelt sé að nota hann sem bækistöð.

Í Hvalfirðinum var einnar mínútu þögn til minningar um þá sem létu lífið.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, var einnig meðal gesta en hann segir að Íslendingar hafi fært miklar fórnir í síðari heimstyrjöldinni. „Við misstum sama hlutfall af fólki og til dæmis bandaríkjamenn. Aðallega ungir menn og mér finnst að þeir eigi skilið að við minnumst þeirra.“

Guðlaugur bendir á að athöfnin í dag hafi verið afar táknræn. „Hér eru fulltrúar allra stríðandi aðila í heimstyrjöldinni. Það gerist ekki oft og það er afar ánægjulegt að það gerist hér á Íslandi,“ segir Guðlaugur Þór.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×