Erlent

Hershöfðingi felldur í sjálfsmorðsárás ISIS

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn standa vörð nærri höfuðstöðvum hersins.
Hermenn standa vörð nærri höfuðstöðvum hersins. Vísir/AFP
Háttsettur íraskur hershöfðingi féll í sjálfsmorðsárás á höfuðstöðvar hersins í Írak. Auk hans féll fimm aðrir hermenn þegar fjórir árásarmenn, sem taldir eru hafa verið á vegum Íslamska ríkisins, komust inn í höfuðstöðvarnar og sprengdu sig í loft upp. Einn árásarmaðurinn er sagður hafa sprengt sig í loft upp inn á skrifstofu hershöfðingjans Ali Aboud.

Sjö hermenn særðust í árásinni.

Í samtali við AFP fréttaveituna, segir yfirmaður lögreglunnar í Haditha, þar sem árásin var gerð, að árásarmennirnir hafi verið klæddir sem hermenn.

Íslamska ríkið tók stór svæði af vestur- og norðurhluta landsins í skyndisókn sumarið 2014. Síðan þá hafa þeir gert aðrar stórar árásir og meðal annars tekið borgina Ramadi. Herinn hefur nú náð henni aftur og sótt fram gegn vígamönnum í eitt og hálft ár. Nú er verið að undirbúa árás á borgina Mosul, sem er í haldi ISIS.

Samtökin gera þó margar sjálfsmorðs- og sprengjuárásir í Írak. Tugir féllu í tveimur sprengjuárásum í Bagdad um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×