Enski boltinn

Herrera: Við getum verið stoltir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Herrera í baráttu við Firmino í kvöld.
Herrera í baráttu við Firmino í kvöld. vísir/getty
Miðjumaðurinn Ander Herrera var einn af betri mönnum vallarins í leik Liverpool og Man. Utd í kvöld.

„Við reyndum að vinna öll návígi og hvern einasta bolta. Við vissum að þetta yrði slagur,“ sagði Herrera eftir leikinn.

Ekki tókst Manchester-liðinu að skora í kvöld en það var í bót í máli fyrir liðið að Liverpool gerði það ekki heldur.

„Við getum verið stoltir. Við vildum vinna leikinn en ég held að við höfum sýnt að við erum stórt lið. Við munum berjast fyrir öllu og ég er stoltur af öllum mínum liðsfélögum.“


Tengdar fréttir

Markalaust á Anfield

Liverpool og Man. Utd buðu ekki til neinnar markaveislu á Anfield í kvöld. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×