Herra Níels var sóttur á kajak út í Gróttu Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. febrúar 2016 09:30 Bjargvætturinn Guðmundur Breiðdal, kemur hér með Grímu Valsdóttur, eða apann Herra Níels, í land.
Gríma Valsdóttir sem leikur apann Herra Níels í leiksýningunni Lína Langsokkur var sótt á kajak út í Gróttu þegar óhapp átti sér stað í Borgarleikhúsinu á sunnudag. Í upphitun fyrir lokasýninguna á Línu Langsokk varð Mikael Köll Guðmundsson sem leikur einnig Herra Níels fyrir því mikla óláni að misstíga sig og var Gríma því kölluð út. Hún var þó hins vegar ekki alveg á besta stað til þess að rjúka upp í leikhús því hún var stödd úti í Gróttu í bekkjarferðalagi og þar var háflóð og ekki hægt að ganga yfir. Hún átti að koma heim um miðjan dag, þegar fjaraði og hægt væri að ganga yfir en óhappið í leikhúsinu átti sér stað að morgni sunnudags.Gríma og Guðmundur eru hér á leið í land.„Ég hringdi í frábæra foreldra sem ég vissi að væri mikið græjufólk og þau brugðust svona skjótt við. Þau hringdu í vini sína sem sóttu kajak fyrir tvo í Nauthólsvík og aðrar sjógræjur. Svo komu þeir og annar þeirra sigldi út í Gróttu og klæddi hana í sjóklæði og sigldi með hana til baka. Hún var svo komin í leikhúsið hálftíma fyrir sýningu,“ útskýrir Ilmur Stefánsdóttir, móðir Grímu. Hún hafði sjálf reynt að sækja dóttur sína en þegar hún var farin að skríða á fjórum fótum á steinunum í sjónum gerði hún sér grein fyrir því að hún kæmist ekki yfir og því var ákveðið að grípa til aðgerða. Þetta ferli tók um það bil tvær og hálfa klukkustund. „Það var hringt í mig klukkan tíu og hún var komin í leikhúsið klukkan hálf eitt.“ Sýningin gekk vel að sögn Ilmar. „Sýningin gekk ótrúlega vel, Grímu leið eins og sannri Línu Langsokk, þetta var þannig ævintýri,“ segir Ilmur létt í lundu. Lokasýningin á Línu langsokk á sunnudaginn í Borgarleikhúsinu var sú 102. í röðinni en sýningin var frumsýnd í september 2014.Ævintýrið sem Gríma lenti í á sýningardaginn minnir óneitanlega á eitthvað sem Lína langsokkur gæti lent í. Lokasýningin gekk mjög vel en hér sjáum við Línu og Herra Níels skemmta sér saman í sýningunni.
Menning Mest lesið Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Lífið Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Lífið Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Bíó og sjónvarp Talin ólíklegust til að komast áfram Lífið Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Bíó og sjónvarp Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Tónlist Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Lífið Mesta hættan í unglingaherberginu Lífið „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Tónlist Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Valgerður selur íbúðina í Vesturbænum Mesta hættan í unglingaherberginu Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Talin ólíklegust til að komast áfram „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Magnea fór upp á fjall á tryllitæki Margrét Ýr og Reynir nýtt par „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Samantha Davis er látin Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Eyfi flutti Nínu með Hinsegin kórnum Sjá meira