Lífið

Herra Hnetusmjör lét tæknilega örðugleika og frammíköll ekki trufla sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hnetusmjörið stóð sig vel.
Hnetusmjörið stóð sig vel.
Lokaþáttur Dominos-körfuboltakvölds var í beinni útsendingu í Ægisgarði úti á Granda þann 11. mars.

Fjölmargir létu sjá sig og var stemningin frábær en um þessar mundir stendur yfir úrslitakeppnin í Dominos-deildinni.

Rapparinn Herra Hnetusmjör mætti í þáttinn fyrir tveimur vikum og tók tvö vinsæl lög í beinni útsendingu, en kappinn flutti 203 Stjórinn og Hvítur Bolur Gullkeðja.

Með honum var enginn annar en Joe Frazier og fóru þeir félagar á kostum. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst en Lífið hefur fengið upptökuna og leyfi til að birta hana. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×