Innlent

Hermann hættir sem framkvæmdastjóri Rauða krossins

Atli Ísleifsson skrifar
Hermann Ottósson mun verða félaginu innan handar fyrst um sinn, en lætur af daglegum störfum í þessum mánuði.
Hermann Ottósson mun verða félaginu innan handar fyrst um sinn, en lætur af daglegum störfum í þessum mánuði. Vísir/GVA
Hermann Ottósson hefur tilkynnt stjórn Rauða krossins á Íslandi að hann óski eftir að láta af störfum.

Í tilkynningu frá félaginu segir að hann muni verða félaginu innan handar fyrst um sinn, en láti af daglegum störfum í þessum mánuði. Hann mun þegar fram í sækir koma til liðs við Rauða krossinn sem sjálfboðaliði með áherslu á neyðarvarnir og áfallahjálp.

Hermann segir að það hafi fyrst og fremst verið gefandi og lærdómsríkt að starfa með öllu því öfluga og hæfileikaríka starfsfólki sem félagið hafi innan sinna raða sem og að eiga samskipti við áhugasama sjálfboðaliða sem félagið býr að. „Því verkefni sem ég tók að mér fyrir Rauða krossinn er lokið og ég tel að nú sér rétti tíminn til að breyta til og takast á við ný verkefni”.

Hermann kom til starfa sem framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi um mitt ár 2013.

Í tilkynningu segir að stjórn Rauða krossins á Íslandi þakki Hermanni góð störf í þágu Rauða krossins og framlag hans til félagins undanfarin ár og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×