Hermann Guðmundsson: Það er kominn pínulítill taktur í samfélagið 28. desember 2011 17:50 Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Mynd / Stefán Karlsson „
2012 verður aðeins skárra ár en ég hélt sjálfur fyrir aðeins þremur til fjórum mánuðum síðan," segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, í viðtali í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann sagði mestu skipta í því samhengi að leiðréttingar á skuldum heimila og fyrirtækja væri langt komin og því veit almenningur frekar hver staða þeirra er, „og getur þar af leiðandi tekið ákvörðun um það hvað skal gera, hvort sem það er að fjárfesta eða eitthvað annað," segir Hermann og bendir á að eyðsla almennings sé meðal annars það sem knýr hagvélina áfram. Hann segir rekstrarumhverfi fyrirtækja þó svipað og fyrir ári síðan. „Það er doði yfir öllu og lítil eftirspurn," útskýrir Hermann. Hann segir fyrirtæki þó finna fyrir launahækkunum almennings síðasta vor auk jólauppbótarinnar, allt þetta skilar sér inn í hagkerfið með einum eða öðrum hætti. „Þannig það er kominn pínulítill taktur í þetta. Það er hægur stígandi," sagði Hermann, sem gagnrýndi meðal annars verðtrygginguna harðlega í viðtalinu, sem hægt er að hlusta á með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira