Hermann aftur forstjóri Tals 26. febrúar 2009 11:02 Hermann Jónasson
Fjármálaráðuneytið úrskurðaði í gær að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra bæri að afmá tilkynningu um breytingu á framkvæmdastjórn og prókúruhafa IP-fjarskipta ehf. (Tals) frá 12. janúar sl. þess efnis að Ragnhildur Ágústsdóttir tæki við forstjórastarfinu og prókúru af Hermanni Jónassyni. Í samræmi við þessa niðurstöðu ráðuneytisins var skráningu í morgun breytt til fyrra horfs og Ragnhildi í framhaldinu vikið frá störfum. Hefur Hermann Jónasson nú tekið við sínu fyrra starfi. Í úrskurði fjármálaráðuneytisins er fallist á kröfu þeirra Jóhanns Óla Guðmundssonar og Hermanns Jónassonar, sem fara með 49% hlut í Tali, um að fyrirtækjaskrá hafi ekki verið heimilt hinn 12. janúar sl. að staðfesta breytingar á stjórn Tals þar sem ákvarðanir um þær hafi ekki verið teknar með lögmætum hætti, í samræmi við samþykktir félagsins og lög um einkahlutafélög. Ákvörðunin á stjórnarfundi Tals 30. desember 2008 um brottvikningu Hermanns og ráðningu Ragnhildar var tekin af tveimur fulltrúum Teymis hf. í stjórn Tals, þeirra Þórdísar K. Sigurðardóttur og Ólafs Þórs Jóhannessonar gegn atkvæði Jóhanns Óla Guðmundssonar og að fjórða stjórnarmanninum, Hermanni Jónassyni fjarstöddum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóhanni Óla Guðmundssyni starfandi stjórnarformanni IP-fjarskipta ehf.
Tengdar fréttir Eðlilega staðið að rekstri Tals Teymi mótmælir harðlega fullyrðingum um að félagið hafi staðið óeðlilega að rekstri Tals. Fullyrðingar um að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins tóku þar sæti eru stórlega orðum auknar, að fram kemur í tilkynningu frá Teymi sem Þórdís J. Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Jóhannesson skrifa undir. Einu afskipti Teymis af stjórnarsetu hinna óháðu stjórnarmanna fólust í áréttingu félagsins um að lögum væri fylgt í hvívetna. 12. febrúar 2009 20:21 Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52 Kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins Teymi segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að skipa nýja fulltrúa félagsins í stjórn Tals óviðunandi og henni verði áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gæti leitt það af sér að félagið hefði engin völd í stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% hlut í félaginu. 26. janúar 2009 15:34 Fulltrúum Teymis vikið úr stjórn Tals Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að fulltrúar Teymis hf. í stjórn IP-fjarskipta hf. (Tali) víki og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir verða af Samkeppniseftirlitinu. 26. janúar 2009 14:55 Samkeppniseftirlitið beitir Teymi dagsektum Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl. 4. febrúar 2009 12:30 Saka Teymi um viðskiptasóðaskap Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. 12. febrúar 2009 16:38 Eigendur Tals eins og foreldrar í forræðisdeilu Hilmar Ragnarsson og Þórhallur Guðlaugsson, sem sögðu sig úr stjórn Tals á dögunum vegna deilna í hlutahafahópi fyrirtækisins, segja deilurnar minna á illvígt forræðismál þar sem foreldrarnir berjist svo hatrammri baráttu að barnið gleymist. 20. febrúar 2009 15:46 Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira
Eðlilega staðið að rekstri Tals Teymi mótmælir harðlega fullyrðingum um að félagið hafi staðið óeðlilega að rekstri Tals. Fullyrðingar um að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins tóku þar sæti eru stórlega orðum auknar, að fram kemur í tilkynningu frá Teymi sem Þórdís J. Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Jóhannesson skrifa undir. Einu afskipti Teymis af stjórnarsetu hinna óháðu stjórnarmanna fólust í áréttingu félagsins um að lögum væri fylgt í hvívetna. 12. febrúar 2009 20:21
Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52
Kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins Teymi segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að skipa nýja fulltrúa félagsins í stjórn Tals óviðunandi og henni verði áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gæti leitt það af sér að félagið hefði engin völd í stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% hlut í félaginu. 26. janúar 2009 15:34
Fulltrúum Teymis vikið úr stjórn Tals Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að fulltrúar Teymis hf. í stjórn IP-fjarskipta hf. (Tali) víki og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir verða af Samkeppniseftirlitinu. 26. janúar 2009 14:55
Samkeppniseftirlitið beitir Teymi dagsektum Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl. 4. febrúar 2009 12:30
Saka Teymi um viðskiptasóðaskap Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. 12. febrúar 2009 16:38
Eigendur Tals eins og foreldrar í forræðisdeilu Hilmar Ragnarsson og Þórhallur Guðlaugsson, sem sögðu sig úr stjórn Tals á dögunum vegna deilna í hlutahafahópi fyrirtækisins, segja deilurnar minna á illvígt forræðismál þar sem foreldrarnir berjist svo hatrammri baráttu að barnið gleymist. 20. febrúar 2009 15:46