Íslenski boltinn

Hermann: Það er búið að sparka í liggjandi menn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis. Vísir
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í 1-1 jafnteflinu gegn ÍA í fyrsta leik 5. umferðar Pepsi-deildar karla í dag.

Það hefur mikið gengið á í vikunni hjá Hermanni og Fylkismönnum eftir að Hermann tók stjórnarmann ÍBV hálstaki eftir leik liðanna á mánudag.

„Það er búið að sparka í liggjandi menn og þetta var frábært hjá mínum mönnum,“ sagði Hermann í viðtali við Vísi eftir leikinn í dag.

„Þetta var frábær leikur hjá okkur, frá upphafi til enda. Ég er hrikalega ánægður með baráttuna í okkar mönnum og hvernig okkur tókst að leysa verkefnið úti á vellinum.“

„Við sköpuðum fullt af færum og á góðum degi hefðum við getað skorað nokkur í viðbót. En það sem stendur upp úr er það sem við gerðum úti á vellinum. Hver einasti leikmaður lagði sig fram og á heiður skilinn fyrir frammistöðuna.“

„Við stjórnuðum spilinu og það sást á mönnum að þeir nutu þess að spila fótbolta og vera til,“ sagði Hermann sem hefur ekki áhyggjur af því að mönnum tókst ekki að nýta færin nægilega vel í dag.

„Svo lengi sem við fáum færi og erum að vinna okkar baráttur - erum líka silkislakir á boltanum - þá er þetta hrikalega skemmtilegt. Við vorum rosalega flottir í dag.“

Fylkir á Fjölni á heimavelli í næsta leik en Hermann segir alla einbeitingu vera á hans eigin leikmönnum.

„Við erum að hugsa um hvað við getum gert vel. Ef við eru einbeittir að því þá munum við taka fullt af stigum í sumar. Auðvitað verður boltinn að fara yfir línuna en ef við höldum áfram að skapa okkur færi þá koma mörkin.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×